Nova
Nova
Nova

AI forritari

Nova leitar að metnaðarfullum AI forritara sem vill taka þátt í að þróa lausnir sem gera líf viðskiptavina einfaldara, hraðara og betra – á hverjum degi 🚀 Í þessu hlutverki vinnur þú að þróun og viðhaldi gervigreindarlausna Nova sem snúa beint að viðskiptavinum.

Í þessu hlutverki vinnur þú að þróun og viðhaldi gervigreindarlausna Nova sem snúa beint að viðskiptavinum, þar á meðal snjallmenni (chatbot) og öðrum AI-drifnum snertiflötum. Þú munt meðal annars kafa ofan í útfærslu samtalsflæða (conversation design) og þróa hvernig módelið bregst við fyrirspurnum. Markmiðið er skýrt: að nýta gervigreind til að skapa framúrskarandi þjónustuupplifun sem fólk finnur raunverulega fyrir.

Þú verður hluti af öflugu og metnaðarfullu teymi sem ber ábyrgð á stafrænum lausnum Nova. Þar færðu svigrúm til að prófa nýjar hugmyndir, hafa áhrif á stefnu og sjá lausnir þínar fara í notkun – ekki bara á teikniborðinu.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur brennandi áhuga á gervigreind og stafrænum lausnum
  • Vill nýta tæknina til að bæta upplifun fólks, ekki bara byggja kerfi
  • Þrífst í samstarfi og vill vera hluti af teymi sem lærir og þróast saman

Hjá Nova færðu tækifæri til að vinna með nýjustu tækni, taka þátt í spennandi umbreytingu og hafa raunveruleg áhrif á hvernig þjónusta lítur út í dag og til framtíðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Þróun og viðhald á snjallmennis-lausnum byggðum á LLM
• Hönnun og útfærsla samtalsflæða (conversation design)
• Samþætting við innri kerfi og þjónustur
• Greining og stöðug umbótavinna á upplifun notenda
• Þátttaka í þróun á stafrænum vörum og lausnum fyrirtækisins
• Mótun kerfishögunar gervigreindarlausna

Advertisement published22. April 2026
Application deadline5. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Lágmúli 9, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags