Festi
Festi
Festi

Hugbúnaðarsérfræðingur

Ertu framúrskarandi “Full stack” forritari sem langar að taka þátt í að þróa flottar fjártæknilausnir sem hafa áhrif á fjölda viðskiptavina?

Við leitum að metnaðarfullum hugbúnaðarsérfræðingi í öflugt þróunarteymi í upplýsingatæknideild Festi til að vinna að þróun á ELKO Snjallgreiðslum sem er nútímaleg “Buy Now - Pay Later” lausn fyrir viðskiptavini ELKO.

Festi er eignarhaldsfélag leiðandi fyrirtækja sem gegna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Starfsemi móðurfélagsins snýr að fjárfestingum og stoðþjónustu við dótturfélögin, ELKO, Krónuna, N1, Lyfju, Yrki fasteignir og Bakkann vöruhótel.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegu sviði
  • Minnst tveggja ára reynsla í fram- og bakenda þróun
  • Reynsla sem nýtist fyrir tæknistakk fjártæknilausna Festi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð samskiptafærni og vilji til að læra

Tæknistakkur

  • React, React Router, Vite
  • Node, Typescript, Fastify
  • Docker, GitHub Actions, Nginx, Cloudflare
  • PostgreSQL

Festi leggur áherslu á að skapa spennandi og líflegt starfsumhverfi þar sem hæfileikar einstaklingsins fá að njóta sín. Starfsfólki er veittur sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmis konar heilsueflandi þjónusta í boði í velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1.

Umsóknarfrestur er til og með 6. maí 2026.

Nánari upplýsingar veitir Linda Kristmannsdóttir, forstöðumaður upplýsingatækni, [email protected].

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Advertisement published24. April 2026
Application deadline6. May 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags