
Norðurál
Norðurál, sem rekur álver á Grundartanga, var valið Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 af Samtökum atvinnulífsins. Framþróun grænnar álframleiðslu mun hafa raunveruleg áhrif á útblástur gróðurhúslofttegunda á heimsvísu. Íslenski áliðnaðurinn er ein stærsta útflutningsgrein landsins og ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs.
Álið okkar, Natur-Al, skilur eftir sig eitt minnsta kolefnisspor í heimi. Þegar litið er á ferlið í heild, frá vinnslu hráefna til afhendingar fullunninnar vöru, nemur kolefnisspor áls frá Norðuráli einungis um fjórðung af heimsmeðaltalinu. Við stefnum að því að verða fyrsta álver í heiminum sem framleiðir kolefnishlutlaust ál.
Hjá Norðuráli leggjum við áherslu á virðingu fyrir mannréttindum, samfélagi og umhverfi. Öryggi, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi og lögð er áhersla á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda.
Hjá Norðuráli starfa um 600 fastráðin, þar af 350 í vaktavinnu, 150 sérfræðingar með fjölbreytta menntun og 100 í iðnaðarstörfum. Til viðbótar eru um 150 í afleysingum.
Norðurál er ASI vottað sem staðfestir að fyrirtækið stenst ítrustu kröfur um samfélagslega ábyrgð, heiðarlega viðskiptahætti, umhverfisvænt hráefni og framleiðslu. Gæðastjórnunarkerfi Norðuráls er vottað samkvæmt alþjóðlega ISO 9001 staðlinum og umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækisins eru vottuð samkvæmt ISO 14001 og ISO 45001 stöðlum. Norðurál er jafnlaunavottað fyrirtæki og er handhafi gullmerkis PWC.

Áhugavert og krefjandi starf fyrir rafvirkja
Við leitum að áreiðanlegum rafvirkja til starfa. Unnið er á 8 tíma vöktum, dag-, kvöld- og næturvöktum (fimm daga vinna/fimm daga frí). Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Starfið heyrir undir tæknisvið fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Fyrirbyggjandi viðhald á framleiðslubúnaði
• Bilanagreining
• Endurnýjun og endurbætur á tæknibúnaði
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sveinspróf í rafvirkjun
• 2ja ára starfsreynsla sem rafvirki er skilyrði
• Fagleg, öguð og nákvæm vinnubrögð
• Frumkvæði og sjálfstæði
• Sterk öryggisvitund
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Góð íslenskukunnátta og almenn tölvunotkun
Advertisement published12. May 2025
Application deadline31. May 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Type of work
Skills
ProactiveClean criminal recordDriver's licenceElectricianIndependencePunctualJourneyman licenseWorking under pressure
Professions
Job Tags
Similar jobs (8)

Söluráðgjafi Johan Rönning á Reyðarfirði
Johan Rönning

Rafvirki á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur: Verkstjóri í vélasal
Akureyri

Liðsfélagi í hóp rafvirkja - rafvirkjanemar
Marel

Rafvirki í söludeild rafbúnaðar
Smith & Norland hf.

Viðgerðarmaður á verkstæði Verkfærasölunnar í Síðumúla
Verkfærasalan ehf

Rafvirki
Veitur

Tæknimaður - þjónustudeild
Fálkinn Ísmar