
Distica
Distica er þjónustu- og dreifingarfyrirtæki á sviði heilbrigðis- og neytendavara. Við erum bakhjarl íslenska heilbrigðiskerfisins, en félagið tryggir að lyf, lækningavörur og aðrar nauðsynjar komist örugglega, hratt og af fagmennsku þangað sem þeirra er þörf.
Það er hlutverk sem við tökum alvarlega — og erum stolt af.

Afgreiðslustjóri
Ert þú jákvæður og drífandi einstaklingur með góða samskiptahæfni?
Við leitum að öflugum afgreiðslustjóra í viðbótarmerkingum sem verður lykilaðili í daglegum verkefnum deildarinnar. Starfið hentar einstaklingi sem er skipulagður, lausnamiðaður, góður í samskiptum og hefur áhuga á að taka virkan þátt í að þróa vinnulag, starfsumhverfi og teymið áfram.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Styðja við og halda utan um daglegan rekstur Viðbótamerkinga
- Skipuleggja og forgangsraða verkefnum og tryggja góða nýtingu mannafla og búnaðar
- Fylgjast með framvindu verkefna, afköstum og lykilmælikvörðum
- Tryggja að verklagi og gæðakröfum sé fylgt og taka þátt í eftirfylgni frávika
- Leiðbeina starfsfólki og styðja það í daglegum verkefnum
- Stuðla að góðum starfsanda, vellíðan og öryggi á vinnusvæðinu
- Halda utan um upplýsingafundi og tryggja gott upplýsingaflæði
- Taka þátt í móttöku, þjálfun og aðlögun nýs starfsfólks
- Halda utan um viðveruskráningu í samstarfi við stjórnanda
- Þátttaka í umbótaverkefnum og bestun á verklagi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Jákvætt hugarfar og vilji til að leggja sitt af mörkum til góðs starfsanda
- Skipulagshæfni og geta til að forgangsraða verkefnum
- Góð færni í samskiptum og samvinnu
- Lausnamiðað hugarfar, frumkvæði og drifkraftur
- Hæfni til að leiðbeina, hvetja og styðja samstarfsfólk
- Nákvæmni og góð eftirfylgni verkefna
- Áhugi á umbótum og þróun vinnulags
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Advertisement published27. October 2026
Application deadline6. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PositivityHuman relationsIndependencePlanningTeam work
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Framtíðarstarf á lager
Tandur hf.

Almennt starf í vöruhúsi Bakkans - Dagvakt, fullt starf
Bakkinn vöruhótel

STARFSMAÐUR Í VÖRUHÚSI
Bako Verslunartækni

Framtíðarstarf í vöruhúsi TDK Foil Iceland ehf, Akureyri
TDK Foil Iceland ehf

Renniverkstæði - Lagerstarf
Embla Medical | Össur

Lagerstarf
Ísfell

Sölufulltrúi, lager- og dreifing
Mekkano heildsala

Starfsfólk í viðbótamerkingar
Distica

Lager- og þjónustustarf
Rafha - Kvik

A4 - Móttaka í vöruhúsi
A4

Bílstjóri og lagerstarfsmaður
Vörumerking ehf

Lagerstarfsmaður
Hirzlan