A4
A4
A4

A4 - Móttaka í vöruhúsi

A4 auglýsir eftir röskum, jákvæðum og duglegum starfskrafti til að sinna móttöku í vöruhúsi. Starfið felur í sér móttöku og afgreiðslu vöru, samskipti við viðskiptavini og flutningsaðila, skráningu í birgðakerfi og náið samstarf við aðrar deildir fyrirtækisins til að tryggja skilvirkt vöruflæði.

Um er að ræða fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 08:00 til 17:00 mánudaga til fimmtudaga og frá kl 08:00 til 16:00 á föstudögum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni:

  • Ber ábyrgð á að kalla til sendingar eins og gáma fyrir móttöku
  • Verkefnastýring
  • Vörumóttaka
  • Vöruskil
  • Upplýsa um frávik til hagaðila
  • Samskipti við innri og ytri aðila
  • Ber ábyrgð á að aðstaða í vöruhúsi og móttökusvæði sé til fyrirmyndar
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann

Hæfniskröfur og persónulegir eiginleikar:

  • Reynsla af sambærilegu starfi
  • Gild ökuréttindi
  • Lyftararéttindi
  • Samviskusemi, nákvæmni, vandvirkni og metnaður
  • Góð þjónustulund og reglusemi
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í hóp
  • Stundvísi, sveigjanleiki og rík ábyrgðartilfinning
  • Íslenskunnátta
  • Aldur 18 ára eða eldri
  • Hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar um starfið veitir vöruhúsastjóri, Lárus Mikael, í gegnum netfangið [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 28 október 2026

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og húsgagna. A4 leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki.  A4 rekur einnig Kubbabúðina í Smáralind.

Advertisement published20. October 2026
Application deadline28. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Köllunarklettsvegur 10, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Meticulousness
Work environment
Professions
Job Tags