Rafha - Kvik
Rafha - Kvik
Rafha - Kvik

Lager- og þjónustustarf

Rafha leitar að þjónustulunduðum starfsmanni til að sinna fjölbreyttu starfi á lager og í verslun

Helstu verkefni eru móttaka og frágangur vörusendinga, afgreiðsla og pökkun pantana, útkeyrsla, gámalosanir, uppsetning raftækja, vörutalningar og önnur almenn lagerstörf. Viðkomandi mun einnig aðstoða í verslun á álagstímum.

Við óskum eftir duglegum einstaklingi sem hefur frumkvæði og jákvæðni að leiðarljósi.

Vinnutími er 9-18 alla virka daga.

Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Öll almenn lagerstörf s.s. gámalosun, frágangur sendinga, afgreiðsla og pökkun pantana.
  • Útkeyrsla til viðskiptavina
  • Tenging og uppsetning á heimilistækjum hjá viðskiptavinum
  • Vörutalningar og önnur tilfallandi verkefni
  • Umsjón með skilavörum
  • Aðstoð í innréttingadeild á álagstímum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rafvirkjamenntun eða önnur iðnmenntun er kostur
  • Bílpróf skilyrði og lyftarapróf er kostur
  • Snyrtimennska, skipulagshæfileikar, frumkvæði og jákvætt viðmót
Fríðindi í starfi

Íþróttastyrkur

Niðurgreiddar máltíðir í gegnum Maul

Advertisement published20. October 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Suðurlandsbraut 16, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.Building skillsPathCreated with Sketch.DeliveryPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Cargo transportation
Professions
Job Tags