Bakkinn vöruhótel
Bakkinn vöruhótel
Bakkinn vöruhótel

Almennt starf í vöruhúsi Bakkans - Dagvakt, fullt starf

Vilt þú ganga til liðs við öflugan hóp hjá Bakkanum?

Bakkinn Vöruhótel leitar að duglegu og áreiðanlegu starfsfólki í fullt starf á dagvakt. Við leitum að einstaklingum sem kunna vel við sig í fjölbreyttu og líkamlegu starfi, sýna frumkvæði og eiga auðvelt með að vinna með öðrum.

Bakkinn rekur tvö vel útbúin vöruhús í Klettagörðum 13 og Skarfagörðum 2. Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur sem vinnur saman að því að tryggja góða þjónustu og að vörur skili sér á réttan stað á réttum tíma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tínsla og afgreiðsla pantana
  • Vörumóttaka og frágangur á vörum
  • Almenn tiltekt og umhirða á vinnusvæði
  • Önnur tilfallandi verkefni í vöruhúsinu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Ábyrgð, áreiðanleiki og stundvísi
  • Góð færni í samskiptum og samvinnu
  • Frumkvæði og vilji til að læra ný verkefni
  • Líkamlegt þrek til að sinna vöruhúsastörfum
  • 18 ára aldur að lágmarki
  • Gild ökuréttindi
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Lyftararéttindi eru kostur
Fríðindi í starfi
  • Framtíðarstarf á dagvakt hjá öflugu fyrirtæki
  • Fjölbreytt verkefni og góðan hóp samstarfsfólks
  • Þjálfun og stuðning við að komast inn í starfið
  • Aðgang að Velferðarþjónustu Bakkans
  • Afsláttarkjör hjá ELKO, Lyfju, Krónunni og N1
  • Styrk til heilsueflingar
  • Niðurgreiddan morgun- og hádegismat
Advertisement published26. October 2026
Application deadline13. November 2026
Language skills
EnglishEnglish
Optional
Intermediate
IcelandicIcelandic
Optional
Intermediate
Location
Skarfagarðar 2, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags