Ullarkistan ehf
Ullarkistan ehf

Afgreiðslustarf í verslun okkar á Glerártorgi

Ullarkistan á Akureyri leitar að duglegum og samviskusömum einstaklingi í hlutastarf.

Vinnutími er hluta úr degi virka daga og aðra hverja helgi innan opnunartíma verslunarinnar, 10-18 virka daga, 10-17 á laugardögum og 12 -17 á sunnudögum. Einnig á auknum opnunartíma t.d. í desember. Við leitum því að sveigjanlegum einstaklingi sem getur aðlagast breytilegum vinnutíma á álagstímum ef þess krefst.

Umsækjandi þarf að vera eldri en 20 ára, vera jákvæð/ur, heiðarleg/ur, stundvís, reyklaus, með góða samskiptahæfileika og ríka þjónustulund.

Starfið felur í sér einkum þjónustu og sölu til viðskiptavina okkar. Við leggjum mikla áherslu á góða og persónulega þjónustu og leitum að starfsmanni sem sýnir metnað og leggur sig fram við að uppfylla þær kröfur.

Íslenskukunnátta er skilyrði. Önnur tungumál kostur. Kostur er að geta hafið störf sem fyrst

Vinsamlega sendið umsóknir ásamt ferilskrá gegnum Alfreð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta og sala
  • Halda verslun snyrtilegri
  • Áfylling á vörum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskukunnátta. Önnur tungumál kostur
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð skipulags og samskiptahæfni
Advertisement published29. April 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Gleráreyrar 1, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags