

Aðstoðarskólastjóri Dalskóla
Laust er til umsóknar starf aðstoðarskólastjóra í Dalskóla.
Spennandi starf í nýlegum skóla í Úlfarsárdal þar sem lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf.
Dalskóli er samrekinn leik- og grunnskóli ásamt frístundaheimili í fallegri byggingu í Úlfarsárdal.
Skólinn er staðsettur í Úlfarsárdal og hóf starfsemi haustið 2010. Í skólanum eru um 650 börn á leik- og grunnskólaaldri. Fyrirhugaðar eru breytingar á stjórnun í skólanum frá og með skólaárinu 2025-2026 en þá mun leikskólahluti skólans vera sjálfstæður. Grunnskólahluti Dalskóla og frístundaheimilið Úlfabyggð verða áfram samrekin.
Í Dalskóla er lögð áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Skólinn starfar eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga og er Dalskóli þróunarskóli í leiðsagnarnámi.
Staðan eru laus frá 1. ágúst 2025.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
• Stýrir daglegu skólastarfi í samvinnu við skólastjóra og aðra stjórnendur.
• Kemur að skipulagi og þróun skólastarfs
• Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila innan og utan skólans.
• Kemur að stefnumörkun skólans og gerð skólanámskrár.
• Stjórnun og stuðningur við kennara og annað starfsfólk.
• Starfsmanna- og ráðningarmál.
• Innleiðing ýmissa fagmála.
• Önnur verkefni í samráði við stjórnendateymi.
• Er staðgengill skólastjóra.
• Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
• Kennslu- og stjórnunarreynsla í menntastofnun.
• Leiðtogafærni og hæfni til að leiða framsækið skólastarf.
• Brennandi áhugi á skólamálum.
• Með hjarta fyrir börnum og velferð þeirra.
• Reynsla og þekking á leiðsagnarnámi.
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
• Faglegur metnaður.
• Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
• Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
• Frumkvæði, sjálfstæði og skapandi hugsun
- Menningarkort- bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur












