Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Fjölbrautaskóli Snæfellinga

Aðstoðarskólameistari – Fjölbrautaskóli Snæfellinga

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir aðstoðarskólameistara í 50% stöðu frá og með 1. ágúst 2026.

Aðstoðarskólameistari er staðgengill skólameistara og nánasti samstarfsaðili hans í daglegri stjórnun, stefnumótun og þróun skólastarfs.

Leitað er að framsýnum leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á menntamálum, einlægan metnað fyrir velgengni nemenda og framgangi í námi auk vilja til að vinna að framsæknu skólastarfi með nemendum, starfsfólki, stjórn og nærsamfélagi. Aðstoðarskólameistari er leiðandi þegar kemur að nýtingu á tækni í skólastarfi, nýsköpun og þróun í kennslu og skipulagi náms.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótun skólastarfs á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla 

  • Þátttaka í stefnumótun og áframhaldandi þróun og nýsköpun í skólastarfi 

  • Skipulag námsframboðs 

  • Skipulag kennslu og stundaskrár 

  • Veitir kennslufræðilega forystu 

  • Ábyrgð á námsmati og mati náms úr öðrum skólum 

  • Ábyrgð á gæðastarfi og sjálfsmati 

  • Aðkoma að upplýsingamiðlun á vefmiðlum 

  • Samskipti við nemendur, starfsfólk og stjórn 

  • Umsjón með útskriftarnemum 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og leyfisbréf kennara, viðbótarmenntun í stjórnun æskileg. 

  • Reynsla af kennslu í framhaldsskóla æskileg 

  • Reynsla og þekking á stefnumótun og mótun framtíðarsýnar menntastofnana æskileg 

  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar 

  • Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 

  • Gott vald á íslensku og ensku í bæði töluðu og rituðu máli 

  • Áhugi á nýtingu tækni í skólastarfi 

  • Hreint sakavottorð og gott orðspor 

Advertisement published26. March 2026
Application deadline13. April 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Grundargata 44, 350 Grundarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags