Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

Skólastjóri grunnskóla í Vesturbyggð

Vesturbyggð auglýsir eftir skólastjóra grunnskóla Vesturbyggðar. Í Vesturbyggð eru reknir þrír grunnskólar, Patreksskóli, Tálknafjarðarskóli og Bíldudalsskóli. Samkvæmt nýju skipulagi verður heildarstjórn grunnskólanna sameinuð undir einn skólastjóra, en dagleg stjórnun verður áfram í hverjum skóla. Jafnframt verður lögð rík áhersla á öflugt stjórnendateymi og aukið samstarf milli skóla.

Skólastjóri grunnskóla Vesturbyggðar ber ábyrgð á faglegri forystu og samræmingu grunnskólastarfs í sveitarfélaginu. Skólastjóri leiðir samstarf skóla, styður við stjórnendur og starfsfólk og vinnur að þróun skólastarfs með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.

Skólastjóri leiðir stjórnendateymi sem skipað er stjórnendum hvers skóla, leikskólastjóra Vesturbyggðar, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og fulltrúa stoðteymis

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða faglega þróun grunnskólastarfs
  • Samræma starf og samstarf milli skóla
  • Bera ábyrgð á rekstri og fjárhagsáætlun grunnskóla
  • Leiða stjórnendateymi skóla Vesturbyggðar
  • Styðja og leiða stjórnendur skóla í daglegu starfi
  • Vinna að stefnumótun og þróun skólastarfs
  • Eiga samstarf við foreldra, fræðsluyfirvöld og nærsamfélag
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
  • Reynsla af skólastarfi
  • Stjórnunar- og rekstrarreynsla
  • Hæfni til að leiða þróunar- og umbótastarf
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Skipulagshæfni og frumkvæði
  • Góð íslenskukunnátta
Advertisement published27. March 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Aðalstræti 75, 450 Patreksfjörður
Type of work
Professions
Job Tags