Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli

Deildarstjóri yngsta stigs í Hörðuvallaskóla

Deildarstjóri yngsta stigs óskast í Hörðuvallaskóla fyrir skólaárið 2026-2027

Í Hörðuvallaskóla eru um 520 nemendur í 1.- 7. árgangi og um 90 starfsmenn. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf og unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Gildi skólans eru virðing, heiðarleiki og þrautseigja.

Í Hörðuvallaskóla er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur og kennarar skólans með spjaldtölvur. Mikil áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymiskennslu, leiðsagnarnám og unnið er eftir samþættu verkefnamiðuðu þemanámi á miðstigi skólans. Unnið er eftir læsisstefnu skólans með áherslu á PALS og Byrjendalæsi. Skólinn er í innleiðingarferli að verða Réttindaskóli UNICEF.

Upplýsingar um skólastarfið í Hörðuvallaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, www.horduvallaskoli.is .

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Faglegur leiðtogi innan skóla í að stuðla að framþróun og nýbreytni í kennsluháttum og kennsluaðferðum s.s. PALS, byrjendalæsi, leiðsagnarnámi, teymiskennslu, námsmati og nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi.
  • Fylgist með nýjungum á sviði kennslu og er leiðandi í faglegri umræðu.
  • Stýrir daglegu starfi á yngstastigi skólans ásamt starfsmannahaldi þar eins og við á.
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennsluréttindi og kennslureynsla í grunnskóla skilyrði.
  • Reynsla af stjórnun í grunnskóla æskileg.
  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi kostur.
  • Þekking og reynsla af uppeldi til ábyrgðar, PALS, byrjendalæsi, teymiskennslu, leiðsagnarnámi og samþættu verkefnamiðuðu þemanámi þar sem unnið er með viðmið um árangur.
  • Stundvísi, áreiðanleiki og þolinmæði.
  • Metnaður í starfi, sjálfstæði, drifkraftur og áhugi fyrir skólaþróun.
  • Mjög góð hæfni í íslensku bæði í töluðu máli og rituðu.
  • Mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í skólastarfi.
  • Leiðtogahæfileikar, framúrskarandi samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Advertisement published24. March 2026
Application deadline7. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Baugakór 38, 203 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags