Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Aðstoðarforstöðumaður frístundar í Borgarbyggð - GBF-deild

Óskum eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling til að starfa sem aðstoðarforstöðumaður frístundar á Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum & Varmalandi.

Meginhlutverk frístundaheimila fyrir 6-9 ára börn er að bjóða þeim innihaldsríkt frístundastarf í öruggu umhverfi þar sem við leggjum mikið uppúr lýðræðisþátttöku barna, vinnum í opnu starfi, klúbbum og sértæku hópastarfi. Leiðarljós frístundaheimila er að bjóða öllum börnum þátttöku í fjölbreyttu frístundastarfi án aðgreiningar með það að markmiði að efla sjálfstraust og félagsfærni þeirra. Einnig að bjóða upp á umhverfi sem einkennist af öryggi, fagmennsku og virðingu þar sem jákvæð samskipti og lýðræðislegir starfshættir eru í hávegum hafðir.

Um er að ræða 80% starf og unnið er samkvæmt gæðaviðmiðum í frístundarstarfi.

Starfsmaður þar að hafa bílpróf þar sem um þrjár starfstöðvar er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja, undirbúa og framkvæma frístundastarfið í samráði við þátttakendur og forstöðumann frístundar.
  • Efla virkni, ábyrgð, sjálfsmynd og sjálfstæði barna á frístundarheimilinu með fjölbreyttum og aldursviðeigandi viðfangsefnum.
  • Utanumhald yfir skráningar og samskipti við foreldra og aðra sem koma að frístundarstarfinu.
  • Að veita starfsmönnum leiðsögn um framkvæmd vinnunnar og stuðla að lýðræðislegum starfsháttum og góðum starfsanda.
  • Skipulag og utanumhald með sumarfjöri sem er leikjanámskeið fyrir börn í 1.-4 bekk ásamt forstöðumanni.
  • Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn frístundar í Borgarbyggð.
  • Er faglegur leiðtogi og tekur virkan þátt í starfi með börnum á starfstíma frístundaheimilis
  • Er staðgengill forstöðumanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði uppeldis, félags- eða tómstundamála eða önnur sambærileg menntun.
  • Reynsla sem nýtist í starfi
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.
  • Bílpróf 
  • Góð íslenskukunnátta í mál og riti
  • Áhugi á að starfa með börnum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í vinnubrögðum.
Advertisement published30. April 2025
Application deadline13. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Varmaland-skóli 134934, 311 Borgarnes
Kleppjárnsreykjaskóli 134416, 320 Reykholt í Borgarfirði
Hvanneyri, 311 Hvanneyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags