
Aðstoð í mötuneyti í Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði
Um er að ræða 70% stöðu sem aðstoðarmanneskja í mötuneyti Stórutjarnaskóla.
Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik- grunn- og tónlistarskóli með um 45 nemendur frá eins árs til 16 ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er Grænfánaskóli og Heilsueflandiskóli og er að innleiða teymiskennslu. Lögð er áhersla á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólans og er skólinn í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Birna Davíðsdóttir, skólastjóri Stórutjarnaskóla, í gegnum tölvupóst [email protected] og í síma 8483547
Helstu verkefni:
- Vinnur undir leiðsögn yfirmatráðs.
- Þátttaka í matseld fyrir nemendur og starfsfólk Stórutjarnaskóla.
- Sér um að matur sé samkvæmt lýðheilsumarkmiðum, hollur, fjölbreyttur og snyrtilega framborinn.
- Frágangur og þrif í eldhúsi og matsal.
- Umsjón með þvotti sem tilheyrir mötuneyti.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er kostur.
- Skipulagshæfni, snyrtimennska og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi.
- Stundvísi og áreiðanleiki.












