Viðbrögð við netárás, undirbúningur og æfing
Á námskeiðinu, sem kennt er af Ebenezer Þ. Böðvarssyni, stjórnanda ráðgjafateymis SYNDIS, munu þátttakendur öðlast skilning á því hvað fyrirtæki og stofnanir sem vilja auka seiglu og áfallaþol þurfa til að búa sig undir það að bregðast við alvarlegum atvikum eins og netárásum.
Þegar bregðast þarf við flóknum aðstæðum eins og alvarlegri netárás er mikilvægt að styðjast við góðar leiðbeiningar, skipulag og ákvarðanir sem stjórnendur hafa tekið yfirvegað á friðartímum. Góð áætlun er hagkvæmasta leiðin út úr erfiðum áföllum. Hún flýtir fyrir viðbragði, minnkar skaðann og verndar orðspor fyrirtækja og stofnana. Oft getur reynst flókið að útfæra áætlanir á einfaldan hátt.
Námskeiðið er í grunninn þríþætt:
- Akademískt þar sem farið er yfir hvað fræðin segja að þurfi að vera til staðar.
- Praktískt þar sem bent er á hvað virkar, hvað ætti að forðast og önnur góð ráð byggð á reynslu leiðbeinanda.
- Raunsæ æfing sem reynir á efnið og býr til reynslu.
Að lokum verður farið í gegnum borðprófsæfingu (e: table top exercise) þar sem þátttakendur takast á við trúverðuga stigmagnandi atburðarás sem reynir á ákvarðanatöku og samvinnu. Ekki er um að ræða próf heldur fara þátttakendur í sameiningu í gegnum æfinguna og rædd verða mismunandi viðbrögð og kostir þeirra og gallar metnir á hverju stigi árásarinnar.