Lög um opinber innkaup
Á námskeiðinu fjalla Dagmar Sigurðardóttir, lögmaður og eigandi á lögfræðistofunni Lagastoð, og Hildur Georgsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna, um helstu atriði laga um opinber innkaup og er námskeiðið því grundvallarnámskeið fyrir þá sem vinna við opinber innkaup eða tilboðsgerð í opinberum útboðum.
Á námskeiðinu verður m.a. skoðað hvaða hæfiskröfur má gera til fyrirtækja, hvað ber að hafa í tæknilýsingu og hvaða valforsendur eru leyfilegar þegar valið er á milli tilboða. Þá verða mismunandi innkaupaferlar kynntir og hvaða afleiðingar það getur haft fyrir opinberan aðila ef innkaup eru ekki í samræmi við lögin.
Lög um opinber innkaup nr. 120/2016 tóku gildi í lok október 2016 en þau innleiða tilskipun nr. 2014/24/EB um opinber innkaup. Umfjöllunin byggist á þessum réttarheimildum en gagnast einnig sérfræðingum sem vinna við opinber innkaup á sviði veitutilskipunar nr. 2014/25/EB.
Lög um opinber innkaup nr. 120/2016 gilda um kaup opinberra aðila á þjónustu, vörum og verkframkvæmdum. Þegar opinber innkaup ná tilteknum fjárhæðum ber opinberum aðilum að viðhafa gegnsætt ferli, gæta samkeppni og jafnræðis milli fyrirtækja. Öll útboð yfir viðmiðunarmörkum innanlands skulu auglýst á slóðinni utbodsvefur.is og þegar viðmiðunarmörkum á Evrópska efnahagssvæðinu er náð, ber að auglýsa innkaupin í rafrænum viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins (https://ted.europa.eu). Farið verður yfir úrskurði kærunefndar útboðsmála og dóma sem varpa ljósi á hvað ber að varast við framkvæmd opinberra innkaupa og tilboðsgerð.