Kvíði barna og unglinga - fagnámskeið
Á námskeiðinu fjalla Elísa Guðnadóttir og Berglind Brynjólfsdóttir, sálfræðingar, um eðli og birtingarmyndir kvíða hjá börnum, helstu orsakir og viðhaldandi þætti og gagnlegar leiðir til að takast á við kvíðavanda barna og unglinga á hjálplegan hátt.
Kvíði er eðlileg tilfinning og eins konar viðvörunarkerfi sem hjálpar börnum og unglingum að forðast hættur og vera betur í stakk búin að takast á við áskoranir í daglegu lífi. Þetta viðvörunarkerfi á þó til að bila og fara af stað í tíma og ótíma þó engin hætta sé á ferðum og getur haft áhrif á eðlilegan þroska, þátttöku í daglegu lífi og truflað nám og félagsleg samskipti. Bilað viðvörunarkerfi lagast sjaldnast af sjálfu sér og því mikilvægt að þeir sem vinna með börnum og unglingum séu færir um að bera kennsl á helstu einkenni kvíða og takast á við þau á hjálplegan hátt. Ef þig langar að öðlast meiri færni á þessu sviði eða fá hugmyndir að verkfærum sem nýtast vel til að laga bilað viðvörunarkerfi þá er þetta rétta námskeiðið fyrir þig!
Á námskeiðinu verður fjallað um eðli og birtingarmyndir kvíða hjá börnum, helstu orsakir og viðhaldandi þætti og gagnlegar leiðir til að takast á við kvíðavanda barna og unglinga á hjálplegan hátt.
Námskeiðið samanstendur af fyrirlestri, umræðum og einföldum verkefnum og byggist á kenningum og aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og atferlismótunar. Gefin verða dæmi og sýnd kennslugögn með aðferðum sem henta ólíkum aldurshópum og henta vel til notkunar í skólakerfinu.