Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ

Kynheilbrigði í starfi með fötluðu fólki

Kynheilbrigði fatlaðs fólks: Hvernig styðjum við örugga og opna umræðu.

Á námskeiðinu fær starfsfólk fræðslu og hagnýt verkfæri til að taka faglegar, virðingarfullar og opnar umræður við fatlað fólk um kynheilbrigði. Fatlað fólk hefur sama rétt og aðrir til kynlífs, sjálfsfróunar, nándar og sambanda. Þrátt fyrir það hefur umræðan oft verið tabú eða hreinlega gleymst í þjónustu og daglegu starfi. Afleiðingin getur verið skortur á fræðslu, óöryggi, skömm og rangar eða óraunhæfar hugmyndir um kynlíf og sambönd.

Námskeiðið byggir á mannréttindum fatlaðs fólks og hvernig starfsfólk getur skapað örugg rými þar sem einstaklingar fá fræðslu, stuðning og tækifæri til að læra um eigið kynheilbrigði. Lögð er áhersla á einfalt og rétt orðaval, að nota fræðileg heiti yfir líkamshluta og kynfæri, og að ræða málin á jafningjagrundvelli án þess að tala niður til fólks.

Einnig verður fjallað um mikilvægi einkarýmis, mörk, samþykki og hreinlæti. Sérstök áhersla er á hvernig starfsfólk getur komið í veg fyrir skömm, vanlíðan og óöryggi – og í staðinn skapað traust, öryggi og heilbrigða umræðu.

Að loknu námskeiði er starfsfólk betur í stakk búið til að ræða kynheilbrigði og hreinlæti sem eðlilegan hluta líkamsþroska, forðast fordóma og tabú, og styðja einstaklinga við að byggja upp jákvæða og virðingarfulla sjálfsmynd.

Starts
26. Feb 2026
Type
Remote
Timespan
1 times
Price
28,900 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Endurmenntun HÍ
Greindu rót vandans með gervigreind
Endurmenntun HÍ
On site18. Mar63,400 kr.
Að ferðast ein um heiminn
Endurmenntun HÍ
On site18. Mar21,900 kr.
Stjórnun fyrir nýja stjórnendur
Endurmenntun HÍ
On site18. Mar64,900 kr.
Líðan, heilsa og öryggi starfsfólks
Endurmenntun HÍ
Remote17. Mar31,400 kr.
Salka - ástin og dauðinn
Endurmenntun HÍ
On site16. Mar19,900 kr.
Ítalska I
Endurmenntun HÍ
On site11. Mar64,900 kr.
Ný hugsun - Nýtt líf
Endurmenntun HÍ
Remote09. Mar36,900 kr.
Hámörkum árangur með gervigreind
Endurmenntun HÍ
On site02. Mar65,500 kr.
Húmor og harmur - Áföll, sorg og bjargráð
Endurmenntun HÍ
On site25. Feb21,900 kr.
Aðferðafræði markþjálfunar fyrir stjórnendur
Endurmenntun HÍ
On site08. Apr59,900 kr.
Tilfinningavandi og DAM-nálgun - fyrir fagaðila
Endurmenntun HÍ
On site16. Mar62,900 kr.
A-ONE: Þjálfunarnámskeið
Endurmenntun HÍ
On site16. Mar295,000 kr.
Fjöláfalla- og tengslavandi hjá börnum
Endurmenntun HÍ
On site12. Mar44,900 kr.
Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin
Endurmenntun HÍ
On site12. Mar34,500 kr.
Heilaheilsa og þjálfun hugans
Endurmenntun HÍ
On site11. Mar41,900 kr.
Ættfræðigrúsk - fjölskyldusaga þín á netinu
Endurmenntun HÍ
On site11. Mar34,900 kr.
Ástir í íslenskum skáldskap
Endurmenntun HÍ
On site11. Mar32,900 kr.
Hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna
Endurmenntun HÍ
On site11. Mar38,900 kr.
Heyrðu, ha?
Endurmenntun HÍ
On site10. Mar28,900 kr.
Að efla seiglu ungmenna: Verkfæri fyrir fagfólk
Endurmenntun HÍ
On site10. Mar29,900 kr.
Portúgal: Lissabon
Endurmenntun HÍ
On site10. Mar24,900 kr.
Sálgæsla og áfallahjálp: Samfylgd í kjölfar áfalla
Endurmenntun HÍ
On site09. Mar54,900 kr.
Excel - Pivot
Endurmenntun HÍ
Remote09. Mar63,400 kr.
Agile verkefnastjórnun
Endurmenntun HÍ
On site06. Mar38,900 kr.
Af krafti inn í starfslokin
Endurmenntun HÍ
On site05. Mar65,900 kr.
Kærleiksrík mörk í uppeldi leikskólabarna
Endurmenntun HÍ
On site05. Mar26,900 kr.
Markvissar aðgerðir í kjölfar TRAS
Endurmenntun HÍ
Remote18. Mar44,900 kr.