

Fuglar og fuglaskoðun
Á þessu námskeiði verður fjallað um íslenskt fuglalíf, stöðu fugla í náttúru landsins, undirstöðuatriði fuglaskoðunar og fuglavernd á Íslandi. Kynning verður á hjálpartækjum við fuglaskoðun.
Íbúar mesta þéttbýlis landsins eru svo lánsamir að hvarvetna í nágrenninu eru fjörur, vötn, tjarnir og önnur búsvæði og er fuglalíf afar fjölskrúðugt árið um kring. Því verður sérstaklega fjallað um fuglalíf í nágrenni Reykjavíkur; á Innnesjum og Suðurnesjum.
Þó hér sé aðeins að finna um 80 tegundir varpfugla, er einstaklingsfjöldi flestra þeirra mikill og berum við Íslendingar ábyrgð á stórum hluta stofna ýmissa mófugla og sjófugla. Staðsetning landsins í miðju Atlantshafi gerir það að verkum að hingað berst ætíð mikið af hrakningsfuglum bæði að vestan og austan. Íslenski fuglalistinn telur nú 415 tegundir.
Þriðji tími námskeiðsins er vettvangsferð með rútu þar sem einhver þessara svæða verða heimsótt: Álftanes, Seltjarnarnes, Reykjavíkurtjörn, Elliðavatn, Heiðmörk og ef til vill fleiri. Nauðsynlegt er að hafa sjónauka og fuglabók með í vettvangsferðina. Rútufargjald er innifalið í námskeiðsgjaldi.