

Fjölskyldur og geðsjúkdómar - fyrir fagfólk
Þegar foreldri glímir við geðræn veikindi hefur það áhrif á alla fjölskylduna. Á námskeiðinu fær fagfólk innsýn og tækifæri til að efla hæfni sína í að mæta fjölskyldum af næmni, öryggi og faglegri þekkingu. Lögð er áhersla á að styrkja fagfólk í að skapa traust, opna samtalið og stuðla að bættri líðan allra í fjölskyldunni.
Lögð er áhersla á hvernig fagfólk getur byggt upp traust, aukið skilning og skapað umhverfi sem styður við fjölskylduna.
Á námskeiðinu er unnið út frá hugmyndafræði Our Time Charity í Bretlandi, sem á rætur að rekja til vinnu Dr. Alan Cooklin, geðlæknis og fjölskyldufræðings.
Á námskeiðinu fær fagfólk innsýn í reynslu barna og foreldra þegar foreldri veikist. Fjallað verður um fræðin sem varpa ljósi á hvernig börn og foreldrar upplifa veikindi. Hvernig best er að mæta fjölskyldum í þessum aðstæðum og hvernig við getum byggt upp traust og tekið samtalið sem stuðlar að opnum samskiptum, auknum skilningi og bættri líðan allra í fjölskyldunni.