

Áhugahvetjandi samtal
Áhugahvetjandi samtal (e. Motivational Interviewing) er aðferð sem miðar að því að virkja vilja skjólstæðings til jákvæðra breytinga á lífsstíl og hegðun. Fagfólk sem tileinkar sér þessa aðferð eflir færni sína í að aðstoða fólk við að breyta viðkomandi hegðun. Mikilvægt einkenni Áhugahvetjandi samtals er einnig að forðast ákveðnar leiðir í samtalinu sem eru til þess fallnar að ýta undir mótþróa og draga úr vilja til breytinga. Borin er virðing fyrir sjálfstæði skjólstæðingsins, rétti hans og getu til að taka eigin ákvarðanir innan viðeigandi marka hverju sinni. Fjallað verður um þverkenningarlíkanið (e. TTM) sem lýsir því hvernig fólk fer í gegnum mismunandi stig þegar það breytir hegðun, frá s.k. „foríhugun“ til viðhalds. Líkanið er gagnlegt verkfæri til að aðlaga skilaboð og inngrip að raunverulegri stöðu og þörfum ólíkra markhópa.