Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Flökun á fisk

Viltu læra að flaka fisk af meira öryggi og fagmennsku? Á þessu námskeiði kynnast þátttakendur grunnatriði flökunar og meðhöndlunar á helstu fisktegundum sem við þekkjum úr íslenskum sjó og vötnum.

Fyrir hverja:

Námskeiðið hentar öllum, óháð reynslu, og engin sérstök forþekking er nauðsynleg, aðeins áhugi á góðum fiski og löngun til að læra. Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja öðlast betri skilning á því hvernig hráefni er unnið frá heilum fiski yfir í tilbúið flak.

Markmið:

Markmiðið er að bæta eigin færni í flökun og auka þekkingu á meðferð sjávarafurða.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Rétta meðhöndlun og geymslu fersks fisks.
  • Notkun hnífa og öryggisatriði við vinnuna.
  • Flökun á algengum tegundum eins og þorski, ýsu, ufsa, laxi og bleikju.
  • Mismunandi aðferðir við flökun eftir tegund og tilgangi.
  • Hagnýt ráð til að hámarka nýtingu hráefnisins

Að loknu námskeiði á nemandi að:

Að vera með kunnáttu að fyrstu skrefum í átt að faglegri vinnubrögðum þegar kemur að fiskflökun, hvort sem þú ert áhugakokkur, fiskunnandi eða einfaldlega forvitin(n).

Starts
7. May 2026
Type
On site
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories