
Iðan fræðslusetur

Autodesk Inventor Essentials grunnnámskeið
Þrívíddarhönnun frá grunni – lærðu að nýta Inventor hugbúnaðinn til fulls.
Fyrir hverja:
Námskeiði hentar fyrir tæknimenn, iðnaðarmenn og aðra sem vilja tileinka sér grunnfærni í þrívíðri, tölvustuddri hönnun með Autodesk Inventor. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem og þeim sem vilja rifja upp undirstöðuatriði.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist færni í að nýta Inventor við hönnun, skissugerð, íhlutaval og uppsetningu á teikningum með faglegri nálgun.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Skissugerð og þrívíddarvinnslu
- Efnislista og íhlutaval
- Samsetningar og hreyfingar þeirra
- Teiknigerð: vörpun, snið, hlutmynd og ísómetría
- Mat á gæðum og leiðréttingu misfella
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta mótað og sett saman íhluti í Inventor
- Geta nýtt verkfæri Inventor til teiknigerðar
- Skilja samhengi hönnunar og framleiðslu
- Kunna að vinna faglega með þrívíddargögn og skjöl
Aðrar upplýsingar:
Boðið er upp á fjarnám samhliða staðnámi. Námsgögn eru afhent á staðnum og tölvur uppsettar. Ekki þarf sérstaka forþekkingu í Inventor til að taka þátt. Iðan fræðslusetur er viðurkenndur kennsluaðili (ATC ) fyrir Autodesk hugbúnað.
Starts
4. May 2026Type
On siteShare
Send message
Share
Copy URL
Categories