

Umbætur og úttektir á prentferlum
Hvernig getum við nýtt litmælingar og gæðaprófanir til að bæta prentgæði? Á námskeiðinu verður byggt á grunnþekkingu í litastýringu og farið yfir niðurstöður Fogra PrintCheck, gerð ICC-litprófíla og aðferðir til að mæla og meta myndgæði í prentun. Einnig verður fjallað um hvernig fyrirtæki geta undirbúið markvissa úttekt á eigin prentferlum.
Fyrir hvern
Námskeiðið er ætlað prenturum, grafískum miðlurum, starfsfólki í forvinnslu, framleiðslustjórum og öðrum sem vinna við litastýringu og gæðaeftirlit í prentun. Æskilegt er að þátttakendur hafi sótt námskeiðið Litastýring I eða búi yfir sambærilegri þekkingu.
Markmið
Að þátttakendur öðlist aukna færni í að greina niðurstöður litmælinga, skilja gerð og notkun ICC-litprófíla og meta myndgæði með stöðluðum prófunaraðferðum.
Á námskeiðinu verður fjallað um
- Niðurstöður Fogra PrintCheck: Yfirferð og greiningu á niðurstöðum úr verkefnum með Fogra-verkfærum.
- Litprófílar og prentferlagreining: Gerð og notkun ICC-litprófíla, prófílgerð (profiling) og greiningu á eiginleikum prentferla (fingerprinting).
- Mat á myndgæðum: Notkun prófunarforma til að mæla og meta gæði prentaðra mynda.
- Helstu gæðaviðmið: Kornun (graininess), óreglulegar brúnir (raggedness), jafna litdreifingu (uniformity) og upplausn (resolution).
- Undirbúningur gæðaúttektar: Hvaða gögn, mælingar og upplýsingar þarf að undirbúa fyrir heimsókn sérfræðings og úttekt á prentferlum fyrirtækisins?
Að loknu námskeiði á nemandi að
- Geta túlkað niðurstöður Fogra PrintCheck og greint tækifæri til umbóta.
- Skilja tilgang og notkun ICC-litprófíla við litastýringu.
- Þekkja aðferðir til að mæla og meta myndgæði í prentun.
- Geta greint helstu gæðavandamál út frá stöðluðum prófunarformum.
- Geta undirbúið eigin prentferla fyrir frekari mælingar, úttekt og gæðabætur.