
Iðan fræðslusetur

Slagregnsprófun á ísetningu glugga
Námskeið fyrir alla sem setja glugga í steinsteypt hús og ganga frá þéttingum og vilja komast að því hvort að þéttingar haldi vatni.
Fyrir hverja:
Þetta er námskeið fyrir alla sem setja glugga í steinsteypt hús og þétta með þeim.
Markmið:
Markmið með námskeiðinu er að fræða þátttakendur um gluggaþéttingar og kenna þeim einfalda aðferð til að slagregnsprófa þá.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Kröfur um eiginleika glugga í íslenskri byggingarreglugerð og merkingu hugtakanna tveggja þrepa þétting, rakaflæði, rakastreymi o.s.frv.
- Framleiðslustýringu í glugga- og hurðaverksmiðju, kröfurnar til að mega CE merkja glugga og hurðir og sýnd dæmi um hættumat í framleiðslunni, verkferla, verklýsingar og gæðaeftirlit.
- Aðferðafræði við framkvæmd slagregnsprófa á gluggum og hurðum samkvæmt kröfum um CE merkingar og þar með kröfum í byggingarreglugerð.
- Hvernig hægt er með einföldum hætti að gera sambærilegt slagregnspróf á glugga, endanlega frágengnum í vegg á byggingarstað með svipuðum hætti og þegar þéttleiki glugga er prófaður í tilraunastofu.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Kunna skil á helstu kröfum sem gerðar eru til glugga í stöðlum og reglugerðum.
- Þekkja grundvallaratriði tveggja þrepa þéttingar og hvernig hún er framkvæmd á byggingarstað.
- Geta slagregnsprófað glugga skv. þeirri aðferðafræði sem kennd er á námskeiðinu.
Annað:
Í lok námskeiðs framkvæma þátttakendur sjálfir próf á þéttleika á gluggaþéttingu.
Hefst
19. maí 2026Tegund
StaðnámDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
Ábyrgð byggingastjóra
Iðan fræðslusetur18. maí
Öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir
Iðan fræðsluseturStaðnám18. maí
Dan Snow Stoneworks - Masterclass
Iðan fræðsluseturStaðnám15. maí
Grunnnámskeið í Bluebeam Revu
Iðan fræðsluseturStaðnám14. maí
Ál og álsuða
Iðan fræðsluseturStaðnám12. maí
CNC-stýrðar iðnvélar
Iðan fræðsluseturStaðnám11. maí