

Dan Snow Stoneworks - Masterclass
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað öllum þeim er vilja læra hvernig hægt er að skapa listaverk úr grjóti og grjóthleðslum.
Markmið:
Að fræða þátttakendur um aðferðir við sköpun úr grjóti.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Skapandi nálgun, þar sem hefðbundin verkkunnátta er nýtt sem grunnur að sjálfstæðri listsköpun úr náttúrugrjóti.
- Skilning á steini sem efni, rými og formi
- Virðingu fyrir náttúrulegu samhengi og samtali við landslagið
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Hafa öðlast skilning á notkun á grjóti í listaverk.
- Öðlast reynslu af sköpun með náttúrugrjóti.
- Hafa tileinkað sér aðferðir við grjóthleðslu við sköpun.
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er haldið af Fornverkum í Höfnum. Öll tæki og tól verða til staðar á svæðinu ásamt kaffaðstöðu. Þátttakendur mæta í vinnufatnaði í samræmi við veður. Boðið verður upp á hressingu yfir alla námskeiðis dagana.
Hafnir eru aldagamalt landnámssvæði sem hefur að geyma margar merkar minjar. Hluti af þessum minjum er gríðarlegt magn af fornum hleðslum og tóftum sem enginn kann deili á í dag.
Með þátttöku kennarans, Dan Snow er tenging Fornverks í Höfnum við alþjóðlegt fagumhverfi styrkt og opnað fyrir nýja sýn á hvernig fornt handverk getur orðið lifandi vettvangur samtímalistar.
Í lok hvers námskeiðs munu þátttakendur fá útskriftarplagg ásamt mynd af hópnum og því listaverki sem tókst að skapa