
Iðan fræðslusetur

CNC-stýrðar iðnvélar
Frá teikningu til fullsmíðaðs vinnslustykkis – náðu tökum á Inventor CAM og CNC-fræs og rennibekk.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er fyrir iðnaðarmenn, tæknimenn og aðra sem vilja öðlast grunnfærni í forritun og notkun tölvustýrðra fræsivéla og rennibekkja, með áherslu á CAM og CNC tækni.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist hagnýta færni í notkun Inventor CAM forritsins og framkvæmd verkefna í Haas CNC fræsivél og Haas CNC rennibekk – frá teikningu til framkvæmdar.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Notkun Inventor CAM viðmótsins
- Forritun með ISO- og G-kóða
- Verklega framkvæmd verkefni á Haas Desktop Mill og Lathe
- Verkfæraval og öryggisstaðla
- Færsla forrita í vélar og tenging CAD og CAM
Að loknu námskeiði á nemamdi að:
- Geta forritað einfaldar CNC vélar
- Beitt öryggisreglum og verklagi
- Nýtt Inventor CAM við hönnun og úrvinnslu
- Framkvæmt verkefni sjálfstætt á CNC tækjum
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið fer fram í húsnæði Iðunnar, Vatnagörðum 20. Þátttakendur fá aðgang að öllum búnaði og tækjum. Ekki er nauðsynlegt að hafa reynslu af notkun CNC -stýrðra tækja en grunnþekking á rennismíði, fræsivinnu og teiknivinnu er kostur.
Hefst
11. maí 2026Tegund
StaðnámDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur