Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ

Sjálfsskaðahegðun unglinga - fyrir fagfólk

Sjálfsskaða- og sjálfsvígshegðun unglinga er vaxandi vandi á vesturlöndum og víða farið að skilgreina hana sem lýðheilsuvanda. Hegðunin er þess eðlis að hún veldur álagi og spennu innan fjölskyldna, meðal unglinga og hjá þeim sem starfa með unglingum. Ástæðan er m.a. sú að erfitt  getur verið að greina á milli sjálfsskaðahegðunar sem hefur þann ætlaða tilgang að lifa og sjálfsvígstilraunar sem hefur þann ætlaða tilgang að deyja.

Sjálfsskaða- sjálfsvígshugsanir og hegðun eru algengari og óstöðugri (geta komið og farið nokkuð skyndilega) hjá unglingum heldur en fullorðnum m.a. vegna aldurs-, þroska- og aðstæðutengdra áhrifaþátta. Sjálfsskaði er ekki  sjúkdómur eða röskun heldur hegðun sem gefur eingöngu til kynna að eitthvað er ekki í lagi. Ekki hefur verið hægt að sýna fram á að einhver einn áhættuþáttur sé áberandi líklegri en annar til að unglingur byrji að skaða sig. Tilgangurinn er oftast að losa um innri spennu/streitu, auk þess sem smitáhrif í umhverfinu geta haft töluverð áhrif. 

Þar sem sjálfsskaða- og sjálfsvígshegðun er orðin nokkuð algeng er mikilvægt að fagfólk, sem vinnur með unglingum, þekki hvernig best er að bregðast við miðað við þá þekkingu sem til er í dag.

Á námskeiðinu fjallar Kristín Inga Grímsdóttir, sérfræðingur í barna- og unglingageðhjúkrun, um:

  • Skilgreiningar á sjálfsskaða- og sjálfsvígshegðun, algengi, tilgangi og samverkandi áhrifaþáttum.
  • Helstu ástæður þess að sjálfsskaða- og sjálfsvígshegðun veldur álagi, spennu og streitu meðal foreldra, unglinga, fagfólks og annarra sem starfa með unglingum.
  • Smitáhrif í vinahópum.
  • Mat á alvarleika og gagnleg/ógagnleg viðbörgð foreldra, fagfólks og annarra sem starfa með unglingum.
  • Hvaða meðferðir lofa góðu varðandi árangur.
Hefst
28. apríl 2025
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Verð
26.900 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Endurmenntun HÍ
Sjálfsskaðahegðun unglinga - fyrir aðstandendur
Endurmenntun HÍ
Staðnám26. mars20.900 kr.
Áhættustýring og afleiðuvarnir
Endurmenntun HÍ
Fjarnám29. apríl29.900 kr.
Að gefa út bók - frá hugmynd til lesenda
Endurmenntun HÍ
Fjarnám29. apríl23.000 kr.
Al-Andalus: Saga múslima á Íberíuskaga
Endurmenntun HÍ
Fjarnám28. apríl49.900 kr.
Ítalska I
Endurmenntun HÍ
Staðnám28. apríl44.900 kr.
Skapandi skrif: Dýpt, þróun og rýni
Endurmenntun HÍ
Staðnám28. apríl49.900 kr.
Spænska I
Endurmenntun HÍ
Fjarnám28. apríl44.900 kr.
CBT Approach to Working with Personality Disorders
Endurmenntun HÍ
Staðnám25. apríl79.800 kr.
Ofbeldi nemenda og hegðunarvandi
Endurmenntun HÍ
Fjarnám23. apríl25.900 kr.
Fréttir af eldfjöllum Íslands 2025
Endurmenntun HÍ
Fjarnám23. apríl29.900 kr.
Fuglar og fuglaskoðun
Endurmenntun HÍ
Staðnám22. apríl39.900 kr.
Völvur, blót og hamhleypur
Endurmenntun HÍ
Staðnám22. apríl42.900 kr.
Samningar og samningaréttur fyrir almenning
Endurmenntun HÍ
Staðnám09. apríl20.900 kr.
Skot í bakið - og hvað svo?
Endurmenntun HÍ
Staðnám09. apríl34.900 kr.
Gagnasöfn og SQL
Endurmenntun HÍ
Fjarnám08. apríl53.900 kr.
Dáleiðsla – fyrir fagfólk
Endurmenntun HÍ
Staðnám28. apríl25.900 kr.
Vefstjórnun - framhald
Endurmenntun HÍ
Staðnám08. apríl37.900 kr.
Fyrirmyndar skjalastjórn
Endurmenntun HÍ
Staðnám09. apríl53.900 kr.
Sjóðstreymi - vanmetni kaflinn í ársreikningnum
Endurmenntun HÍ
Fjarnám08. apríl35.900 kr.
Áhættustýring og sviðsmyndagerð
Endurmenntun HÍ
Staðnám08. apríl51.900 kr.
Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun
Endurmenntun HÍ
Staðnám09. apríl66.900 kr.
Á tímamótum - fjármál við starfslok
Endurmenntun HÍ
Staðnám08. apríl20.900 kr.
Sorg og sorgarviðbrögð barna og unglinga
Endurmenntun HÍ
Fjarnám07. apríl25.900 kr.
Trjá- og runnaklippingar
Endurmenntun HÍ
Staðnám07. apríl29.900 kr.
Innivist og sálræn líðan
Endurmenntun HÍ
Staðnám04. apríl34.900 kr.
Taktu erfiðar ákvarðanir eins og íþróttadómari!
Endurmenntun HÍ
Staðnám03. apríl29.900 kr.