Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Rakamælingar í byggingum

Þetta námskeið um rakamælingar er fyrir fagfólk í byggingariðnaði sem vill gæta að réttu rakastigi í byggingum og byggingarefnum.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir fagfólk í byggingariðnaði sem vill gæta að réttu rakastigi í byggingum og byggingarefnum.

Markmið:

Markmið þess er að fræða þátttakendur um notkun rakamæla í byggingum.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Raka og æskilegt rakastig í húsum og mismunandi byggingarhlutum og byggingarefnum og hvað telst vera eðlilegur raki í þeim.
  • Rakamælingar, hvernig þær eru framkvæmdar og með hvaða tækjum.
  • Hvernig á að bera sig að við rakamælingar og hvað ber að varast.
  • Mælitækin, virkni þeirra og stillingar eftir mismunandi byggingarefnum o.s.frv.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Kunna skil á raka og rakastigi.
  • Þekkja æskilegan raka í byggingum og byggingarefnum.
  • Vita hvernig framkvæma á rakamælingar í húsum.

Aðrar upplýsingar:

Á námskeiðinu eru unnin verkefni og framkvæmdar mælingar með mælitækjum frá Protimeter.

Hefst
19. mars 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar