

Endurmenntun atvinnubílstjóra - Vistakstur
Fyrir hverja:
Alla bílstjórar með réttindi í flokkum C, C1, D og D1 sem vilja viðhalda atvinnuréttindum sínum. Þetta námskeið flokkast undir hlutann öryggi.
Hér geta bílstjórarar skoðað sína stöðu gagnvart námskeiðum.
Ef engin námskeið birtast, eru engin námskeið í gildi eða hafa ekki verið skráð af námskeiðshöldurum. Atvinnubílstjórar sem aka bílum í flokkum C, C1, D og D1 þurfa að að ljúka fimm endurmenntunarnámskeiðum á síðustu fimm árum fyrir endurnýjun til að fá tákntöluna 95 í skírteinið sitt. 95 tákntalan gerir bílstjórum kleift að starfa við akstur innan EES svæðisins.
Frekari upplýsingar má nálgast á vef Samgöngustofu
Markmið:
Bílstjórinn þekki hugmyndafræði vistaksturs og með hvaða hætti hann getur lágmarkað eldsneytiseyðslu og umhverfismengun og hámarkað öryggi sitt og annarra í umferðinni með réttu aksturslagi. Að því er stefnt að bílstjórinn: Skilji mikilvægi mengunarvarna og umhverfisverndar, þekki virkni vélarinnar og þau efni sem valda hvað mestum skaða í umhverfinu, aki með vistvænum hætti þannig að hann geti lágmarkað eldsneytiseyðslu, t.d. með skynsamlegri notkun vélarafls og hemla, aki af öryggi og framsýni og geti greint vísbendingar um hættur í umferðinni.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Vistfræði og mengun
- Vistvænan akstur
- Mengunarvarnir
- Notkun hemla
- Umhverfisvænan drifbúnað
- Umferðarslys og fyrirbyggjandi aðgerðir
- Öryggisskoðun ökutækja og búnaðar
- Þreyta, athygli og truflun við akstur
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekki hugmyndafræði vistaksturs
- Skilja mikilvægi mengunarvarna umhverfisverndar
- Þekkja leiðir til að lágmarka eldsneytiseyðslu
- Skilja hversu mikil áhrif þreyta og truflun hafa á athygli í akstri
- Skilja mikilvægi framsýni í umferðinni
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er kennt bæði í stofu og í streymi á netinu.