
Iðan fræðslusetur

Lagning þakpappa
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir byggingamenn sem leggja asfaltpappa á þök og aðra fleti utanhúss og vilja gera það með réttum og öruggum hætti.
Markmið:
Markmið námskeiðsisn er að auka öryggi og þekkingu starfsfólks við lagningu þakpappa. Greina áhættuþætti við mismunandi þakgerðir og aðstæður. Tilgangurinn er að innleiða öruggt verklag, góðan undirbúning og draga þannig úr tjóna- og slysahættu.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Lög og reglugerðir varðandi öryggi og eldvarnir við lagningu þakpappa.
- Tæki og búnað sem notaður er við vinnu við lagningu þakpappa.
- Mismunandi gerðir þaka og þakgerða og hættur sem fylgja vinnu við þær.
- Asfaltpappa, mismunandi gerðir og eiginleika.
- Val á réttum efnum og aðferðum miðað við aðstæður.
- Undirbúning framkvæmda, áhættumat og öryggisráðstafanir.
- Framkvæmdir og eftirfylgni við lagningu þakpappa.
- Hættur við logavinnu og aðferðir til að forðast þær.
- Viðbrögð við eldi og notkun slökkvitækja.
- Fallvarnir og öryggisráðstafanir við vinnu í hæð.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja viðeigandi lög, reglugerðir og staðla sem gilda um eldvarnir og öryggi á vinnustöðum og í mannvirkjagerð.
- Þekkja helstu gerðir tækja og búnaðar, gas-, brennara- og slökkvibúnað.
- Þekkja helstu þakgerðir og gera þér grein fyrir hættum sem kunna að vera til staðar.
- Þekkja hvernig og hvaða gagna þurfi að afla og greina og eftir atvikum hafa til taks á verkstað hverju sinni (t.d. teikningar).
- Geta greint helstu áhættuþætti við lagningu þakpappa, gert viðeigandi úrbætur til að tryggja öryggi og undirbúa og framkvæma vinnu með opinn eld í samræmi við öryggiskröfur.
- Kunna að fylgja lagningu þakpappa eftir með viðeigandi öryggisráðstöfunum til að draga úr hættu á eldi og slysum.
- Geta miðlað þekkingu um eldvarnir og öryggisráðstafanir til samstarfsfólks og tekið virkan þátt í öryggismálum á vinnustað.
- Geta brugðist rétt komi upp eldur í kjölfar lagningar þakpappa, þar með talið rýming, fyrstu aðgerðir slökkvistarfa og tilkynningarskylda, auk þess að geta valið og notað viðeigandi slökkvibúnað út frá efnivið og aðstæðum.
- Nota viðeigandi fallvarnir og fallvarnabúnað við vinnu á þökum
Hefst
18. mars 2026Tegund
StaðnámTímalengd
2 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar