
Iðan fræðslusetur

Öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir
Fjarnámskeið fyrir öryggisfulltrúa, trúnaðarmenn og aðra sem bera ábyrgð á öryggismálum á vinnustað – fræðsla, ábyrgð og verkfæri í starfi.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað öllum sem sinna hlutverki öryggistrúnaðarmanna, öryggisvarða eða bera ábyrgð á öryggi og heilbrigði á vinnustað þ.m.t. verkstjórum og stjórnendum. Það hentar einnig sem endurmenntun fyrir þá sem gegna slíkum hlutverkum nú þegar.
Markmið:
Að veita þátttakendum skýra yfirsýn yfir hlutverk sitt í öryggismálum og veita þá þekkingu og verkfæri sem nauðsynleg eru til að sinna hlutverki öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða í samræmi við lög og reglugerðir.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Lög og hlutverk öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða
- Helstu þætti sem snúa að heilsu og öryggi starfsmanna, s.s. líkamsbeitingu, vélbúnað, inniloft, hávaða og lýsingu
- Sálfélagslegt vinnuumhverfi með áherslu á einelti og áreitni og möguleg úrræði
- Samskipti við stjórnendur og samstarfsfólk
- Áhættumat og skipulag vinnuverndar
- Skráningu atvika og eftirlit með vinnuumhverfi
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja hlutverk sitt samkvæmt vinnuverndarlögum
- Geta sinnt samskiptum og fræðslu á vinnustað
- Meta áhættu og stuðla að úrbótum
- Vinna að öruggu og heilsusamlegu starfsumhverfi
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið fer fram í fjarnámi á vefnum og unnið er í eigin hraða. Við lok námskeiðs fá þátttakendur viðurkenningu.
Hefst
28. sept. 2026Tegund
FjarnámTímalengd
1 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
Gluggaísetningar og þéttingar
Iðan fræðsluseturStaðnám29. sept.
Loftfrískunarkerfi - Meðhöndlun kælimiðla
Iðan fræðsluseturStaðnám28. sept.
Frágangur raka-, vind- og vatnsvarnarlaga með SIGA
Iðan fræðsluseturStaðnám25. sept.
Vatnsúðakerfi – sprinkler
Iðan fræðsluseturStaðnám25. sept.
Hnífabrýnsla
Iðan fræðsluseturStaðnám24. sept.
Töfrarnir á bak við Dumplings
Iðan fræðsluseturStaðnám24. sept.
Raki og mygla í húsum 1
Iðan fræðslusetur24. sept.
Ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda
Iðan fræðsluseturStaðnám23. sept.