Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Öryggi við vélar

Auktu öryggi í vinnuumhverfi málmiðnaðar – lög, reglur og góðar starfsvenjur á þremur klukkustundum.

Fyrir hverja:

Námskeiðið hentar fyrir alla starfsmenn í málmiðnaði: vélvirkja, vélstjóra, plötusmiði og verkamenn.

Markmið:

Að þátttakendur auki þekkingu á réttindum og skyldum í vinnuvernd, ásamt að því að kynnast helstu reglum, hættum og forvörnum í málmiðnaði.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Vinnuvernd á Íslandi og ábyrgð atvinnurekenda, verkstjóra og starfsfólks
  • Hávaða, lýsingu, inniloft og meðhöndlun varúðarmerkt efna
  • Öryggisblöð og öryggisráðstafanir vegna efna
  • Vélbúnað og merkingar véla
  • Réttindi á vinnuvélar og helstu hættur tengdar þeim
  • Viðhald véla og tækja, klemmihættu og hlífar á vélum
  • Varúðarfjarlægðir, læsa – merkja – prófa verklag
  • Hættur í lokuðu rými og fallhættur
  • Skilgreiningar á vinnuslysi, óhappi og næstum slysi
  • Skráningu og tilkynningu vinnuslysa
  • Helstu orsakir vinnuslysa og forvarnir
  • Notkun persónuhlífðarbúnaðar

 

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja ábyrgð atvinnurekanda, verkstjóra og starfsfólks í vinnuvernd
  • Geta metið áhættu og helstu hættur í vinnuumhverfi málmiðnaðar
  • Beita réttum öryggisráðstöfunum við meðhöndlun efna og notkun vinnuvéla
  • Þekkja réttindi sín og skyldur samkvæmt lögum og reglum um vinnuvernd
  • Geta framkvæmt skráningu og tilkynningu vinnuslysa
  • Beita forvörnum til að draga úr líkum á vinnuslysum
  • Nota viðeigandi persónuhlífar og viðhafa rétt verklag til að tryggja öryggi sitt og annarra

Aðrar upplýsingar:

Engar forkröfur eru gerðar fyrir þátttöku. Stutt krossapróf í lok námskeiðsins.

Hefst
6. okt. 2026
Tegund
Fjarnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar