Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Endurmenntun atvinnubílstjóra - Vöruflutningur

Þarft þú að endurnýja réttindi þín til atvinnuaksturs ?

Fyrir hverja:

Alla bílstjórar með réttindi í flokkum C, C1, D og D1 sem vilja viðhalda atvinnuréttindum sínum. Þetta námskeið flokkast undir hlutann öryggi.Hér geta bílstjórarar skoðað sína stöðu gagnvart námskeiðum. Ef engin námskeið birtast, eru engin námskeið í gildi eða hafa ekki verið skráð af námskeiðshöldurum. Atvinnubílstjórar sem aka bílum í flokkum C, C1, D og D1 þurfa að að ljúka fimm endurmenntunarnámskeiðum á síðustu fimm árum fyrir endurnýjun til að fá tákntöluna 95 í skírteinið sitt. 95 tákntalan gerir bílstjórum kleift að starfa við akstur innan EES svæðisins. Frekari upplýsingar má nálgast á vef Samgöngustofu

Markmið: 

Markmiðið er að bílstjórinn geti gengiðfrá og fest af öryggi mismunandi tegundir farms. Bílstjóri þekki reglur um, notkun farm- og fylgiskjala sem krafist er í flutningum bæði innanlands sem og á milli landa.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Áhrif á ökutæki í akstri
  • Aksturslag
  • Álagsþyngdarpunt á ökutæki
  • Þyngd og stærð farms
  • Rétta lestun
  • Rétta notkun festibúnaðar
  • Reglugerð um frágang farms

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja þá krafta sem verka á vörubifreið í akstri
  • Kunna að lesta bifreið og vagnlest af öryggi
  • Þekkja helstu tegundir festibúnaðar
  • Þekki ákvæði í lögum og reglum um vöruflutninga í atvinnuskyni

Aðrar upplýsingar:

Námskeiðið er kennt bæði í stofu og í streymi á netinu.

Hefst
3. okt. 2026
Tegund
Staðnám og fjarnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar