Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Ofurkraftar í matvæla- og veitingagreinum

Viltu spara dýrmætan tíma daglega í rekstrinum, eldhúsinu eða salnum með aðstoð gervigreindar?

Starfsfólk í matvæla- og veitingagreinum stendur daglega frammi fyrir miklu álagi og fjölbreyttum verkefnum. Auk fagvinnunnar fer oft mikill tími í tölvupósta, skipulag, vaktaplön, gæðaskjöl, eftirfylgni með rýrnun hráefnis, matseðlagerð og annað sem fylgir rekstri og starfsmannamálum. Flest gervigreindarnámskeið eru mjög almenn. Á þessu námskeiði sleppum við flóknu tæknimáli. Við kennum á mannamáli með raunhæfum dæmum og sýnum þér hvernig gervigreind verður þinn öflugasti aðstoðarmaður í daglegu starfi.

Dagskrá og uppsetning (4x 3 klukkustundir):

Námskeiðinu er skipt upp í 4 hnitmiðaða hluta. Fyrri tveir tímarnir byggja upp sterkt tæknilæsi (AI Fluency) en í seinni tveimur tímunum mætir fólk beint inn í hagnýtar vinnustofur sem leysa áskoranir þeirra eigin fagstéttar.

HLUTI 1: Almennur inngangur og AI Fluency (Öll fög saman)

  • Skipti 1: Gervigreindarlæsi og spurnaforritun
    • Aðferðarfræði spurnaforritunar: Lærum grundvallaratriðin í því hvernig á að eiga í gagnvirkum samræðum við gervigreind til að fá réttar og áreiðanlegar niðurstöður.
    • Spyrja rétt: Uppbygging á góðu prompti (hlutverk, samhengi og skýr fyrirmæli). Brjótum ísinn með verkefnum eins og fljótlegum og faglegum svörum við TripAdvisor/Google umsögnum og snöggum tölvupóstum til birgja.
  • Skipti 2: Almennt vs. sértækt spjall
    • Munurinn á tækninni: Farið yfir hvenær á að nota opin spjalltól (ChatGPT, Claude, Gemini) og hvenær á að nýta sértækt spjall eða lokaða þekkingargrunna (t.d. NotebookLM hlaðið inn með gæðahandbókum eða reglugerðum).
    • Útkoman er sértækur botti: Sérhver þátttakandi hannar sinn eigin sérsniðna AI-aðstoðarmann (botta) sem er hannaður til að leysa endurtekin verkefni á hans eigin vinnustað.

HLUTI 2: Sérhæfðu fagnámskeiðin (Deep Dive í fagstéttir)

Ef fjöldi í stétt leyfir er hópunum skipt upp, en stéttir með mikla samlegð (eins og bakarar og kjötiðnaðarmenn) keyra saman til að tryggja nægan hóp og faglega dýpt

  • Skipti 3: Áskoranir eftir fagstéttum
    • Unnið er í hópum eftir starfsstéttum þar sem helstu áskoranir úr þeirra hversdegi eru kortlagðar með hliðsjón af gervigreind.
    • Dæmi um áskoranir sem unnið er með:
      • Bakarar & Kjötiðnaðarmenn: Handavinna við að endurreikna og skala uppskriftir handvirkt, byrgðar hald, ásamt aðlögun á vinnsluferlum (gerjun, pæklun) út frá hita og rakastigi í salnum.
      • Matreiðslumenn: Skapandi matseðlagerð, flóknir kostnaðarútreikningar, byrgðar hald, matarsóun (Zero Waste), matseðlagerð og tímafrek skrif á HACCP skjölum.
      • Þjónar: Starfsmannavelta og ör þjálfun nýliða, ásamt söluhvötum, byrgðar haldi, vaktaplönum og textagerð.
  • Skipti 4: Lausnir dregnar lengra og virkjaðar
    • Valdar áskoranir úr þriðja tíma eru teknar alla leið í framkvæmd.
    • Þátttakendur nýta tækifæri gervigreindarinnar til að leysa sínar raunverulegu áskoranir og fara heim með tilbúnar afurðir sem spara tíma strax á næstu vakt.

Takmarkað sætaframboð. Tryggðu þér sæti.

Hefst
5. okt. 2026
Tegund
Staðnám og fjarnám
Tímalengd
4 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar