Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Japanska 1 og 2

Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref  í að læra japönsku og byrja að tala !

Á þessu námskeiði tekur þú saman stig 1 og 2.

Þú færð  góðan grunn  í málinu  og  þjálfar skilning og tal  auk þess að byggja upp hagnýtan orðaforða og málfræði á fjölbreyttan hátt. Þú færð sjálfstraust  til að vaxa og  blómstra í tungumálinu.

Um námskeiðið

Námskeiðið er ætlað byrjendum í japönsku og á því er lögð áhersla á hnitmiðaða kennslu.

Markmiðið er að byggja upp grunnorðaforða og þjálfa framburð og færni í samskiptum.

Áherslur

  • Að læra að tjá þig  og eiga samskipti á japönsku
  • Að byggja upp orðaforða sem nýtist vel í daglegu lífi
  • Að þjálfa undirstöðuatriði í málfræði, meðal annars þátíð
  • Að læra að lesa og skrifa 30 kanji stafi
  • Að dýpka skilning á menningu og lífsháttum í Japan
  • Við lok námskeiðsins muntu búa yfir aukinni færni til að eiga samskipti á japönsku og getu til að nota  hagnýtan orðaforða af meira öryggi.
Hefst
17. sept. 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar