
Iðan fræðslusetur

Hjólastilling
Fyrir hverja:
Námskeiðið er fyrir fólk sem vill komast á lista samgöngustofu yfir mælingamenn sem hafa heimild til útgáfu hjólastöðuvottorða.
Markmið:
Gera þátttakenda kleift að komast á lista Samgöngustofu þegar kemur að útgáfu hjólastöðuvottorða og miðla til þeirra upplýsingum í tengslum við þau réttindi ásamt því að auka þekkingu þegar kemur að hjólastillingum.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Það ferli sem þarf að fylgja til að öðlast réttindi til að gefa út hjólastöðuvottorð.
- Þær reglugerðir sem tengjast útgáfu hjólastöðuvottorða frá upplýsingum samgöngustofu.
- Helstu grunnhugtök þegar kemur að hjólastillingu .
- Tækninýungar sem tengjast hjólabúnaði bifreiða.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Hafa þekkingu á þeim reglum og skildum sem tengjast útgáfu hjólastöðuvottorða.
- Þekkja grunnhugtök hjálastillingar og getað hjólastillt bíl með réttum hætti.
- Þekkja þann búnað sem nauðsynlegur er í tengslum við hjólastilingu.
- Vera meðvitaður um þær tækninýungar sem tengjast hjólabúnaði bifreiða.
Aðrar upplýsingar:
Gerðar eru verklegar æfingar, ýmist á námskeiðinu sjálfu eða úti á vinnustað þátttakenda ef þörf er á.
Til þess að fá réttindi verður aðili að hafa sveinspróf í bifvélavirkjun eða bifreiðasmíði. Mælingarmaður verður að sækja um úttekt á starfsstöð að námskeiði loknu í gegnum idan.is. Viðurkenning mælingamanns gildir í 5 ár. Frekari upplýsingar má finna á vef Samgöngustofu
Hefst
8. apríl 2026Tegund
StaðnámDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur