Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Frágangur raka-, vind- og vatnsvarnarlaga með SIGA

Námskeið fyrir húsasmiði sem vilja kynna sér frágang byggingahluta með SIGA efnum þar sem þeir fá yfirsýn yfir efnin frá SIGA og aðferðir við notkun þeirra. Námskeiðið er að hluta verklegt þar sem þátttakendur fá að vinna með efnin.

Fyrir hvern:

Þetta námskeið er fyrir húsasmiði sem vilja kynna sér frágang byggingahluta með SIGA efnum.

Markmið:

Að þátttakendur fái góða yfirsýn yfir efnin frá SIGA og aðferðir við notkun þeirra.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Efni frá SIGA sem notuð eru til frágangs á raka-, vind- og vatnsvarnarlögum á húsum og hvernig gengið er frá þeim á réttan hátt
  • Mismunandi byggingahluta og frágang á þeim
  • Þau verkfæri og áhöld sem henta best við mismunandi verk
  • Hvernig best er að vinna með efnin frá SIGA og fá þátttakendur þjálfun í því

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja efnin frá SIGA sem notuð eru til frágangs á raka-,vind- og vatnsvarnarlögum í byggingum
  • Kunna aðferðir við frágang á mismunandi byggingahlutum
  • Þekkja verkfæri og áhöld sem henta við frágangsvinnu
  • Geta unnið með efni frá SIGA í byggingum.

Annað:

Námskeiðið er haldið í samvinnu við SIGA Swiss.

Hefst
10. apríl 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar