Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

FEM burðarþolsgreining með Autodesk Inventor

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað vélahönnuðum, tæknifræðingum og öðrum fagfólki sem notar Autodesk Inventor og vill auka þekkingu sína á tölvustuddri burðarþolsgreiningu (FEM) sem hluta af hönnunarferli.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist grunnfærni í uppsetningu, framkvæmd og mati á burðarþolsgreiningum með smábútaaðferðinni (FEM) í Autodesk Inventor og geti nýtt FEM sem virkt hönnunartól.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Grunnatriði smábútaaðferðarinnar (FEM) við burðarþolsgreiningu
  • Helstu tegundir burðarþolsgreininga í Autodesk Inventor
  • Bitamódel (rammamódel): festur, álag, liðir, vægi og beygjuferlar
  • Samfelld módel (solid módel) á vélarhlutum
  • Greiningu stakra hluta og samsettra módela
  • Snertifleti, álagsskilyrði og festur í samsettum módelum
  • Áhrif elementþéttleika á niðurstöður og mat á áreiðanleika greininga
  • Bestun á lögun með tilliti til burðarþols og lágmörkunar massa

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta sett upp og framkvæmt einfalda FEM-burðarþolsgreiningu í Autodesk Inventor
  • Geta túlkað niðurstöður FEM-greininga og metið takmarkanir þeirra
  • Geta nýtt FEM-greiningar sem stuðning við hönnun og ákvörðunartöku
  • Geta beitt FEM-aðferðafræði til einfaldra verkefna í burðarþolshönnun og bestun

Aðrar upplýsingar:

  • Forkröfur: Grunnþekking á Autodesk Inventor og almennri vélahönnun
  • Fyrirkomulag kennslu: Fyrirlestur og verkleg dæmi í tölvuumhverfi
  • Námsgögn: Kennsluefni og dæmi unnin í Autodesk Inventor
  • Tæki og tól: Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að Autodesk Inventor
Hefst
8. apríl 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
2 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar