

Fagnámskeið 2 fyrir starfsfólk leikskóla
Námið er framhald af Fagnámskeiði 1 fyrir starfsfólk leikskóla og er ætlað þeim sem vinna á leikskólum, eru eldri en 20 ára og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi. Tilgangur námsins er að byggja ofan á þeirri þekkingu sem námsfólk hefur öðlast í Fagnámskeiði 1 fyrir starfsfólk leikskóla og auðvelda námsfólki að takast enn frekar á við verkefni sem þeim eru falin í starfi, efla sjálfstraust þeirra og lífsleikni og stuðla að jákvæðu viðhorfi til áframhaldandi náms. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði og kennt samkvæmt námskrá vottaðri af Menntamálastofnun.
Námskeiðið er kennt á íslensku. Til þess að geta tekið þátt í námskeiðinu er mælst til þess að þátttakendur séu a.m.k. á stigi A2-B1 skv. evrópska tungumálarammanum.
Sjá hér: https://www.rannis.is/media/islenskukennsla/Evropski-tungumalaramminn.pdf
Umsækjendum þessa námskeiðs stendur til boða að taka ókeypis stöðupróf hjá Mími-símenntun áður en sótt er um. Ef áhugi er fyrir hendi, hafið samband við verkefnastjóra námskeiðsins.
Uppbygging náms
Á námskeiðinu er lögð áhersla á námsþætti sem styrkja persónulega og almenna færni t.d. heilsueflingu, innra starf og námskrá leikskóla, íslenskukennslu, listastarfi með börnum, þroska og þróun barna og slysavarnir. Einnig fara þátttakendur í heimsókn í valda leikskóla til að kynnast starfi þeirra.
Kennsla fer fram frá 8:30 – 15:30 mánudaga – föstudaga í Höfðabakka 9. Námskeiðið er 70 klukkustundir og fer fram á 12 kennsludögum.
Námsgreinar
- Færnimappa
- Heilsuefling
- Heimsókn í leikskóla
- Innra starf í leikskóla
- Íslenska fyrir tvítyngd börn
- Líkamsbeiting og vinnuaðstaða
- Listastarf með börnum
- Námskrá leikskóla
- Þroski og þróun leikskólabarna
- Slysavarnir