Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Fagnámskeið 1 fyrir starfsfólk leikskóla

Námið er ætlað einstaklingum sem eru eldri en 20 ára, hafa stutta skólagöngu og vinna við uppeldi og umönnun barna á leikskólum. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði og kennt samkvæmt námskrá vottaðari af Menntamálastofnun. Fagnámskeiðin eru haldin í samstarfi Mímis-símenntunar og stéttarfélaga. 

Námskeiðið er kennt á íslensku. Til þess að geta tekið þátt í námskeiðinu er mælst er til þess að þátttakendur séu a.m.k. á stigi A2-B1 skv. evrópska tungumálarammanum.

Sjá hér: https://www.rannis.is/media/islenskukennsla/Evropski-tungumalaramminn.pdf

Uppbygging náms

Kennsla fer fram frá 8:30 – 15:30 mánudaga – föstudaga. Námskeiðið er 70 klukkustundir og fer fram á 12 kennsludögum.

Á fagnámskeiðunum er bæði lögð áhersla á námsþætti sem styrkja persónulega og almenna færni t.d. sjálfstyrkingu og samskipti, námstækni, færnimappa og tölvur og svo  námsþætti eins og uppeldi leikskólabarna, þroski og þróun leikskólabarna, listastarf með börnum, námsskrá leikskóla, fjölmenningarlegan leikskóla og fleiri.

Námsgreinar

  • Fjölmenningarlegur leikskóli
  • Hreyfiþjálfun leikskólabarna
  • Málþroski barna
  • Námstækni og markmiðasetning
  • Næringarfræði
  • Sjálfsefling og samskipti
  • Tölvuleikni
  • Umhverfismennt
  • Uppeldi leikskólabarna
Hefst
13. maí 2024
Tegund
Staðnám
Tímalengd
12 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar