
Iðan fræðslusetur

Að fanga augnablikið - Myndefni á samfélagsmiðlum
Þetta námskeið er ætlað fagfólki í matvæla- og veitingageiranum sem vill efla hæfni sína í myndagerð fyrir samfélagsmiðla og eigin nota. Unnið er með hagnýta nálgun þar sem þátttakendur læra að nýta aðstæður, ljós og umhverfi til að fanga augnablik og stemningu í starfi sínu með iPhone snjallsíma eða einfaldri myndavél. Námskeiðið felur í sér að læra að búa til einfalt en vandað myndefni, og miðla því á réttan hátt í leik og starfi. Námskeiðið er kennt einu sinni í viku í 3 vikur, 4 klst. í senn. ATH – Námskeið þetta er ætlað þeim sem eiga Iphone síma og einfaldar myndavélar
Fyrir hverja:
Fagfólk í matvæla- og veitingagreinum sem vilja bæta myndatökufærni sína og fanga augnablikið þegar það gefst.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist traustan grunn og hagnýt verkfæri til að búa til betra myndefni, nýta ljós og umgjörð rétt, og vinna myndir á einfaldan hátt.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Myndefni og árangursríka notkun þess fyrir samfélagsmiðla
- Möguleika og takmarkanir iPhone snjallsíma og einfaldari myndavéla
- Gervilýsing innandyra og í lítilli birtu
- Leikmuni, bakgrunn og uppsetningu (styling)
- Kynningu á myndvinnsluforritum
- Verklegar æfingar, einstaklings- og hópaverkefni og heimaverkefni
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta tekið flottar myndir með iPhone snjallsíma eða einfaldri myndavél
- Búið til aðlaðandi myndefni fyrir samfélagsmiðla
- Geta nýtt lýsingu og umhverfið til að fanga stemninguna
- Unnið myndefni í iPhone snjallsíma
Hefst
27. apríl 2026Tegund
StaðnámDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
Autodesk Inventor Essentials grunnnámskeið
Iðan fræðsluseturStaðnám04. maí
PAGO Byggingarsteinar
Iðan fræðsluseturStaðnám05. maí
Flökun á fisk
Iðan fræðsluseturStaðnám07. maí
Grunnnámskeið í CABAS
Iðan fræðsluseturStaðnám29. apríl
Umbrot og framleiðsla í InDesign
Iðan fræðsluseturStaðnám05. maí
Rennismíði og fræsing
Iðan fræðsluseturStaðnám04. maí