Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Autodesk Inventor Essentials grunnnámskeið

Þrívíddarhönnun frá grunni – lærðu að nýta Inventor hugbúnaðinn til fulls.

Fyrir hverja:

Námskeiði hentar fyrir tæknimenn, iðnaðarmenn og aðra sem vilja tileinka sér grunnfærni í þrívíðri, tölvustuddri hönnun með Autodesk Inventor. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem og þeim sem vilja rifja upp undirstöðuatriði.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist færni í að nýta Inventor við hönnun, skissugerð, íhlutaval og uppsetningu á teikningum með faglegri nálgun.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Skissugerð og þrívíddarvinnslu
  • Efnislista og íhlutaval
  • Samsetningar og hreyfingar þeirra
  • Teiknigerð: vörpun, snið, hlutmynd og ísómetría
  • Mat á gæðum og leiðréttingu misfella

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta mótað og sett saman íhluti í Inventor
  • Geta nýtt verkfæri Inventor til teiknigerðar
  • Skilja samhengi hönnunar og framleiðslu
  • Kunna að vinna faglega með þrívíddargögn og skjöl

Aðrar upplýsingar:

Boðið er upp á fjarnám samhliða staðnámi. Námsgögn eru afhent á staðnum og tölvur uppsettar. Ekki þarf sérstaka forþekkingu í Inventor til að taka þátt. Iðan fræðslusetur er viðurkenndur kennsluaðili (ATC ) fyrir Autodesk hugbúnað.

Hefst
4. maí 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar