Veritas

Veritas

Vinnustaðurinn
Um vinnustaðinn
Veritas sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu og er móðurfélag fyrirtækjanna Artasan, Distica, MEDOR, Stoð og Vistor sem öll eiga það sameiginlegt að vera leiðandi á íslenskum heilbrigðismarkaði, hvert á sínu sviði. Hlutverk Veritas er að styðja við áframhaldandi vöxt og þróun fyrirtækjanna með reynslu sinni og þekkingu.

VR - Fyrirmyndarfyrirtæki 2012

Jafnlaunavottun

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2018

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2012

Hörgatún 2, 210 Garðabær
Umhverfisstefna
Markmið umhverfisstefnunnar er að valda sem minnstri mengun í umhverfinu og draga úr álagi á það, sem og auðlindir, með því að halda neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi fyrirtækisins í lágmarki. Sjónarmið umhverfisverndar eru höfð í huga við alla þætti rekstrar og ákvarðanatöku. Framkvæmdastjórn Veritas samstæðunnar er ábyrg fyrir umhverfisstefnunni. Umhverfisnefnd er starfandi og er hún ábyrg fyrir innleiðingu, framkvæmd og eftirfylgd stefnunnar. Umhverfisstefnan og leiðir til að uppfylla hana eru reglulega kynntar á starfsmannafundum. Starfsmenn Veritas framfylgja umhverfisstefnunni og hafa hana að leiðarljósi í störfum sínum og vinna eftir starfsmarkmiðum hennar.
Faglegar ráðningar
Staðið er faglega að ráðningum og móttöku nýrra starfsmanna, fylgst er með starfsþróun einstaklinga og hlúð að mannauðsbætandi þáttum.

201-500

starfsmenn

Hreyfing

Starfsfólk nýtur styrk til heilsueflingar

Fjarvinna

Sveigjanlegt vinnulag er í boði innan fyrirtækisins

Samgöngur

Samgöngustyrkur er veittur starfsfólki eftir reglum hverju sinni

Matur

Frábært mötuneyti er í boði og niðurgreiðsla á mat

Nýjustu störfin
Veritas
Bókari
Veritas
Markmið
Markmið Veritas er að hjá okkur starfi aðeins bestu starfsmennirnir sem völ er á hverju sinni. Stefnt er að því að þeir séu vel menntaðir, rétt þjálfaðir og hæfir til að sinna starfi sínu af fagmennsku, alúð og ánægju.
Gildi
Gildi Veritas eru ÁREIÐANLEIKI – HREINSKIPTNI – FRAMSÆKNI. Þau eru niðurstaða gildavinnu sem allir starfsmenn fyrirtækisins tóku þátt í. Starfsmenn Veritas og dótturfyrirtækja hafa þau að leiðarljósi í störfum sínum. Gildin eru táknuð með þessum merkjum: Áreiðanleiki snýst um það að standa við gefin loforð og vinna af heilindum með fagmennsku og heiðarleika að leiðarljósi. Birgjar, viðskiptamenn og aðrir geta treyst því sem við segjum og lofum og að lög, reglur og aðrar kröfur sem til okkar eru gerðar séu virt. Hreinskiptni skapar grunninn að heiðarlegu vinnuumhverfi. Við gefum skýr skilaboð og segjum það sem í brjósti býr á nærgætinn og uppbyggilegan máta. Við viljum virkja skoðanir sem flestra og örva gagnrýna hugsun. Að tala hreint út og fara ekki í kringum hlutina sparar tíma. Framsækni táknar löngun og viðleitni starfsmanna til að vaxa, þróast, þroskast og gera betur. Við leitum alltaf leiða til að gera betur – endanleg lausn er ekki til. Við erum opin fyrir breytingum og nýjungum, sýnum frumkvæði og ögrum núverandi stöðu.