
Útlendingastofnun
Vinnustaðurinn

PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Útlendingastofnun er ein af undirstofnunum dómsmálaráðuneytisins og starfar samkvæmt lögum um útlendinga nr. 80/2016, lögum um íslenskan ríkisborgararétt, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 og reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 1160/2010. Útlendingalöggjöfin gildir um heimild útlendinga til að koma til landsins og dvelja hér á landi en útlendingur telst hver sá sem ekki er íslenskur ríkisborgari samkvæmt lögum um íslenskan ríkisborgararétt.
Umfangsmesti þátturinn í starfsemi Útlendingastofnunar er útgáfa dvalarleyfa. Útlendingastofnun afgreiðir allar umsóknir um dvalarleyfi, hvort sem um er að ræða dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku eða t.d. fjölskyldusameiningar, námsvistar eða vistráðningar, umsóknir um alþjóðlega vernd og umsóknir um íslenskan ríkisborgararétt og umsóknir um vegabréfsáritanir.
Dalvegur 18, 201 Kópavogur
Nýjustu störfin
Engin störf í boði