Umhverfis- og orkustofnun

Umhverfis- og orkustofnun

Umhverfis- og orkustofnun
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Umhverfis- og orkustofnun tók til starfa 1. janúar 2025. Stofnunin tók við starfsemi Orkustofnunar og hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar. Umhverfis- og orkustofnun fer með stjórnsýslu loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefni auðlindanýtingar. Þar á meðal eru verkefni í fjölbreyttum málaflokkum: Efnamál Eftirlit Haf og vatn Hringrásarhagkerfi Loftgæði Loftslags- og orkusjóður Losunarheimildir Orkuskipti Orkunýtni Starfsemin fer fram á sex starfsstöðvum um allt land en bæði á Borgum á Akureyri og á Suðurlandsbraut í Reykjavík er starfað í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi. Starfsstöðvarnar okkar eru: Akureyri, Mývatnssveit, Egilsstaðir, Selfoss, Reykjavík og Hvanneyri.

Græn skref

Verkefnið Græn skref er árangursrík leið fyrir stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins að vinna markvisst að umhverfismálum í skrifstofustarfssemi sinni. Skrefin eru alls fimm og unnið er eftir skýrum gátlistum.

ISO 9001 - Gæðastjórnunarstaðall

ISO9001 er alþjóðlega viðurkenndur gæðastjórnunarstaðall.

Jafnlaunavottun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Heimsmarkmiðin

Fyrirtækið er þátttakandi í 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna gegn hlýnun Jarðar.

Svansvottun

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem var komið á fót af Norrænu ráðherranefndinni árið 1989. Meginmarkmið Svansins er að draga úr umhverfisáhrifum af vörum eða þjónustu og auðvelda neytendum að velja umhverfisvænni kosti.

ISO 14001 - Vottun umhverfisstjórnunarkerfa

Umhverfisstjórnunarstaðallinn ÍST EN ISO 14001:2015 er alþjóðlegur staðall sem skilgreinir kröfur fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja bæta heildar árangur sinn í umhverfismálum með því innleiða í starfsemi sína umhverfisstjórnunarkerfi.
Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri
42
Meðalaldur starfsfólks
Meðalaldur starfsfólks

51-200

starfsmenn

Samgöngur

Við semjum vel við starfsfólk um umhverfisvænar samgöngur til vinnu

Fjarvinna

Fjarvinnuheimild fyrir mörg störf 1-2 dagar í viku

Matur

Mötuneyti á Suðurlandsbraut

Heilsa

Íþróttastyrkir fyrir starfsfólk

Vinnutími

Sveigjanlegur vinnutími, 36 stunda vinnuvika

Húsnæði

Val um að starfa á einni af 6 starfsstöðvum

Nýjustu störfin

Engin störf í boði