Tölvulistinn

Tölvulistinn

Meiri gæði - Aukin þekking - Betri þjónusta
Tölvulistinn
Um vinnustaðinn
Tölvulistinn er keðja tölvuverslana sem staðsettar eru um allt land. Tölvulistinn var stofnaður árið 1992 og eru verslanir Tölvulistans staðsettar í Reykjavík, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjanesbæ. Verslunin í Reykjavík hefur verið staðsett á Suðurlandsbraut 26 frá árinu 2007 og hefur að geyma mikið úrval af gæða tölvuvörum ásamt fyrirtækjaþjónustu og skrifstofum Tölvulistans. Tölvulistinn flytur inn og þjónustar tölvuvörur fyrir marga af þekktustu tölvuframleiðendum heims eins og Toshiba, Asus, Acer, Epson, Philips, AOC, CoolerMaster, MSI, Razer, Logitech, Corsair, Western Digital, Intel, AMD, Seagate, Manhattan, Rapoo, Targus, SanDisk, Zyxel, Planet, Fortron, Microsoft, Qnap og Supermicro. Tölvulistinn er hluti af Heimilistækja fjölskyldunni sem á og rekur fjölbreyttar verslanir um land allt. Verslanir samstæðunnar eru Heimilistæki, Tölvulistinn, Rafland, Byggt og búið, Kúnígúnd og Iittala búðin en auk þess rekur fyrirtækið Raftækjalagerinn og verkstæði. Hjá samstæðunni starfa tæplega 200 starfsmenn í fjölbreyttum störfum þar sem lögð er áhersla á jákvætt starfsumhverfi og vinalegan starfsanda.

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2024

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn

Moodup - Vinnustaður í fremstu röð 2024

Vinnustaður í fremstu röð er ný viðurkenning fyrir vinnustaði sem sýna í verki að þeir hugsa um starfsfólk sitt og tryggja því gott starfsumhverfi.

Jafnlaunavottun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík
Jafnlaunastefna
Tölvulistinn leggur áherslu á að greiða jöfn laun og veita sömu kjör fyrir sambærilega frammistöðu, óháð kyni, kynþætti eða öðrum órökstuddum viðmiðum.
Þjónustustefna
Við leggjum mikið upp úr því að veita góða þjónustu. Því teljum við ekki síður mikilvægt fyrir góðan sölufulltrúa að hafa ríka þjónustulund. Við bjóðum reglulega upp á vörufræðslufundi fyrir starfsfólk svo það geti aukið sjálfsöryggi og þekkingu sína í starfi.

51-200

starfsmenn

1992

stofnár

63%

27%

Skemmtun

Hluti af því að skapa jákvætt og vinalegt starfsumhverfi er að hrista reglulega saman starfshópinn og bjóða upp á reglulega skemmtun. Árlegir viðburðir eru til dæmis glæsileg árshátíð, jólahlaðborð, keilumót, golfmót og fleiri smærri viðburðir á vegum starfsmannafélagsins.

Mannauðsstefna
Við getum stolt sagt frá því að meðalstarfsaldur í Tölvulistanum er 12 ár, út frá því má áætla að starfsánægja hjá okkar starfsfólki sé þónokkur. Stefna Tölvulistans er að þar starfi metnaðarfullt og þekkingarsækið starfsfólk sem skilar sér í jákvæðu og vinalegu starfsumhverfi.