Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk

Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk

Vinnustaðurinn
Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Þörungaverksmiðjan er staðsett á Reykhólum, sem er lítið þorp við norðanverðan Breiðafjörð. Verksmiðjan er 40 ára gömul og hefur sótt þang og þara til þurrkunar í Breiðafjörð allan þann tíma. Umhverfismál og sjálfbærni vistkerfisins hafa verið mikilvæg allt frá upphafi og er passað upp á það að ganga ekki á auðlindina við öflun hráefnisins. Þörungarnir eru þurrkaðir við jarðhita, malaðir og mjölið svo flokkað eftir grófleika og síðan pakkað. Afurðirnar eru seldar um allan heim til mjög fjölbreyttra nota; fóðurgerð, áburður og snyrtivörur auk þess sem stór hluti fer til algínatframeliðslu. Alginöt eru bindi- og hleypiefni sem notuð eru í mjög fjölbreyttum iðnaði; matvæla- og drykkjarframleiðslu, og í lyf og snyrtivörur. Reykhólar er venjulegt Íslenskt smáþorp með sundlaug, leik- og grunnskóla, veitingastað og verslun. Náttúran í kringum bæinn og í sveitinum í kring er einstök og eru fjöldamargar gönguleiðir í kring. Einnig er mikið fuglalíf og eru mýrar nálægt þorpinu þar sem hægt er að sjá tugi fuglategunda. Um 20 manns í öryggismiðuðu umhverfi hjá Þörungaverksmiðjunni við þang- og þarafölun, löndun og framleiðslu. Thorverk is situated in Reykholar, it is a small village in West Fjords of Iceland. It has geothermal swimming pool, schools, restaurant and a convenient store. It is located on a beautiful peninsula with mountains that have lakes on top and hiking routes. Diverse bird life is in a swamp close to the village with walking routes through it. The routes are closed during high nesting season in May. Thorverk is a 40 year old factory that harvests seaweed from Breidafjordur, we have from the start been careful to make sure that the sustainability of the plants and not to harm the ecosystem in the ocean. Safety and environmental issues are part of our daily operating. Today around 20 employees work various jobs at Thorverk.
Karlsey verksmiðjuh 139663, 380 Reykhólahreppur
Nýjustu störfin

Engin störf í boði