
STEF
Vinnustaðurinn

PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
STEF eru félagasamtök tón- og textahöfunda á Íslandi.
Hlutverk STEFs er að varðveita og efla höfundarétt á sviði tónlistar.
STEF innheimtir höfundaréttargjöld fyrir flutning tónlistar þar sem hún er flutt opinberlega fyrir hönd tónhöfunda. Sem dæmi um viðskiptavini STEFs má nefna útvarps- og sjónvarpsstöðvar, tónleikahaldara, verslanir, veitingastaði, hárgreiðslustofur, heilsuræktarstöðvar svo og tónlistarveitur eins og Spotify og YouTube.
STEF úthlutar síðan höfundaréttartekjum til hlutaðeigandi rétthafa. Úthlutun fer fram á grundvelli upplýsinga um hvaða verk hafa verið flutt, t.d. í útvarpi svo og skráninga verka í gagnagrunn STEFs.
Í STEF eru skráðir um 9000 höfundar og aðrir rétthafar tónlistar og gagnagrunnur STEFs er með um 100.000 verk.
Laufásvegur 40, 101 Reykjavík
Nýjustu störfin
Engin störf í boði