
Skógasafn
Vinnustaðurinn

PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Skógasafn er eitt vinsælasta byggðasafns landsins og er það ekki af ástæðulausu. Safnið var stofnað árið 1949 sem gerir það að einu elsta byggðasafni landsins. Safnkosturinn samanstendur af meira en 18 þúsund munum að mestu frá Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Skógasafn er að finna 150 kílómetra austan af Reykjavík og 30 kílómetra vestan af Vík. Safnið er sérstaklega þekkt fyrir Þórð Tómasson, sem var safnvörður meginpart ævi sinnar og ber ábyrgð á mestri söfnuninni.
Skógasafn skiptist í raun í þrjú söfn, byggðasafn, húsasafn og samgöngusafn. Byggðasafnið er elsti hlutinn og sýningarrýmið er á þremur hæðum og þar má finna sjósókn, landbúnað, náttúrugripasafn, vefnað, forn handrit og bækur, þar á meðal eintak af Guðbrandsbiblíu frá 1584, ásamt munum frá Víkingaöld.
Í húsasafninu má finna torfbæi frá lokum 19. aldar ásamt fleiri hýbýlum sem flutt hafa verið á safnasvæðið.
Samgöngusafnið var opnað árið 2002 og sýnir sögu samgangna og tækniþróunar á Íslandi frá lokum 19 aldar og allt til dagsins í dag.
Byggðasafnið í Skógum 163673
Nýjustu störfin
Engin störf í boði